vaxtaviðmið og húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar.
Virðulegur forseti. Ríkisstjórn sem þorir, húsnæðispakkinn kynntur fyrir nokkrum dögum. Mér sýndist að hann væri meira og minna byggður á húsnæðisstefnu sem var samþykkt hér í júní árið 2024. Það er gleðilegt. Þetta voru margar góðar hugmyndir og ég hvet ríkisstjórnina til að halda áfram á þeirri braut. Til að mynda er fjallað nákvæmlega um byggingarreglugerðina þar. Það sem er áhugavert við þetta er að Viðreisn og Flokkur fólksins studdu ekki þessa húsnæðisstefnu á sínum tíma en öllu batnandi fólki er best að lifa.
Þarna er stefna til 2038 og aðgerðaáætlun til 2028. Airbnb-breytingin er auðvitað gegn fólki úti á landi að hluta, allt annað í frumvarpinu er gott. Hækkun á leigu mun auðvitað draga úr framboði á leiguhúsnæði og vinna gegn þessum hugmyndum. Aukningin í hlutdeildarlánunum er jákvæð. Spurningin er hins vegar: Hvernig dreifist hún um byggðir landsins? Fer hún líka á önnur svæði en til Reykjavíkur? Verður sala á eignum HMS til þess að draga úr getu HMS til þess að standa við uppbygginguna tryggða byggð, sem hefur verið undirstaða þess að það hefur verið byggt mjög mikið úti á landi á síðustu árum?
Hérna eru nokkrar spurningar en stærsta spurningin og kannski sú sem stendur út af — vegna þess að engin af þessum hugmyndum sem voru kynntar þarna hefur nein áhrif á núverandi stöðu uppnáms á fasteignalánamarkaði, annað en það sem kynnt hefur verið sem vaxtaviðmið. Mig langar að spyrja líka hæstv. forsætisráðherra út í þá breytingu. Það virðist vera breyting frá alla vega fyrri yfirlýsingum fjármálaráðherra um að ríkið eigi ekki að koma að því að binda vaxtakjör til húsnæðismála. Hvað stendur til á þessu sviði, að gefa út vaxtaviðmið (Forseti hringir.) í samtali og samstarfi við Seðlabankann eða ríkið sjálft að fara fram með frumvarp? Ég held að það séu mjög margir að bíða eftir skýrari svörum um þennan þátt sem var orðaður þarna um daginn.