vaxtaviðmið og húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og það er gleðilegt að sjá að hann fagni ákveðnum aðgerðum frá ríkisstjórninni. Það getur verið margt gott í stefnu. Ég held að við séum ekki að leitast eftir því almennt að vera ósammála heldur að fylgja aðgerðum eftir. Það er okkur að meinalausu að taka jákvæða þætti sem hefur verið rætt um jafnvel í áraraðir hjá síðustu ríkisstjórn og framkvæma þá. Það er okkur að meinalausu og ég held reyndar að það sé ýmislegt í okkar pólitík almennt sem getur náð út fyrir þessa ríkisstjórn ef við getum verið sammála um það.
Varðandi sérstaklega þessa punkta með vaxtaviðmiðið þá er þetta vinna sem er í gangi núna og það verður sýnt á spilin þegar líður á vikuna. Það eru örfáir dagar síðan þessi staða kom upp á lánamarkaði og það er ekki heldur búið að klára öll dómsmál þessu tengd þannig að við verðum að einhverju leyti að leyfa rykinu að setjast. Það breytir því ekki að þarna er ríkisstjórnin tilbúin að stíga inn í, auðvitað í samráði við Seðlabankann, og veita ákveðið akkeri á lánamarkaði ef lánastofnanir eru að kalla eftir viðmiðunarvöxtum. En við getum auðvitað ekki skipað lánastofnunum að veita ákveðna tegund lána ef þær hafa ekki áhuga á því. Þetta er eitthvað sem mun skýrast núna í vikunni.
Mig langar að segja svolítið varðandi Airbnb-frumvarpið af því að hér eru miklar blammeringar um að þetta sé gegn fólki úti á landi. Það er þannig að samkvæmt þessu frumvarpi mátt þú eðlilega leigja út lögheimili sem Airbnb 90 daga á ári, sem var upphaflega pælingin á bak við Airbnb. Ef þú ætlar hins vegar að vera með gistiheimilarekstur þá mátt þú alveg vera með gistiheimilarekstur, hvort sem þú býrð í bænum eða úti á landi, en þá sækir þú einfaldlega um atvinnuleyfi til þess og borgar tilskilin gjöld fyrir það. Það er bara fullkomlega eðlilegt að ef þú ert að reka eins konar gistiheimili í fleiri en einu húsi sem þú býrð ekki í í samkeppni við önnur gistiheimili, sem standast allar skuldbindingar sínar varðandi brunavarnir, varðandi gjöld og annað, þá sé bara eðlileg samkeppni. Það er því ekkert verið að leggjast sérstaklega gegn landsbyggðinni hér. Ég vildi bara sérstaklega taka það fram.