vaxtaviðmið og húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar.
Virðulegur forseti. Við verðum alveg örugglega ósammála um það, þar sem að ef ég byggi á höfuðborgarsvæðinu með lögheimili hér þá mætti ég leigja út húsið mitt sem ég á annars staðar, t.d. á Flúðum, og ríkisstjórnin segir að það sé í lagi. Ef ég bý til að mynda í dreifbýli á Suðurlandi og á íbúð í bænum, vegna þess að börnin mín þurfa að fara í framhaldsskóla og háskóla, þá má ég það hins vegar ekki. Það er augljós mismunun þarna og hún beinist gegn fólki sem býr úti á landi þannig að ég ætla að vera ósammála hæstv. forsætisráðherra hvað það varðar.
En mig langar aðeins að halda áfram með vaxtaviðmið og velta því upp af hverju ríkisstjórnin var ekki undirbúin fyrr. Það er búið að liggja fyrir í langan tíma að hér væri að fara að koma dómur um þessi mál. Það var verið að kynna þetta hér fyrir nokkrum dögum og það er sagt á næstu dögum. Ég held að fasteignalánamarkaðurinn sé einfaldlega í uppnámi og geti verið það á næstu mánuðum þannig að ég hvet ríkisstjórnina til dáða að þessu marki. Ég vil bara spyrja hvort þau séu tilbúin að ganga lengra því að við vorum að tala um óverðtryggð lán við hæstv. fjármálaráðherra um daginn, hvort það væri (Forseti hringir.) hugsanlegt að ríkisstjórnin gengi lengra þar. Hvað með stuðninginn við Reykjavíkurborg um innviðauppbyggingu? Er það stuðningur sem öðrum sveitarfélögum mun bjóðast líka? Því að það eru vaxtarsvæði annars staðar. (Forseti hringir.) Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera í því? Hvað er planið?