breyting á skyldubundinni skiptingu fæðingarorlofs.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Snorra Mássyni hjartanlega fyrir fyrirspurnina. Hér er ég alveg af lífi og sál fyrir hv. þingmann. Ég tek heils hugar undir og stend við það að ég kann ekki við forræðishyggjuna. Ég kann ekki við það að taka sjálfræði af foreldrum um það hvernig þau eyða sínu fæðingarorlofi. Jú, við höfum rætt þessi mál og við höfum verið að skoða þessi mál og síðast í morgun, svo ég upplýsi það, vorum við að setja á spretti í mínu ráðuneyti þar sem þetta mál var einmitt til umræðu og þar sem ég mun halda áfram að berjast fyrir því. Það liggur alveg fyrir vegna þess að þetta er mér hjartans mál. Það er mér hjartans mál að foreldrar fái að ráða því sjálfir hvernig þeir nýta sér sitt fæðingarorlof. Mér hefur fundist þetta meira eins og að segja: 12 mánuðir í fæðingarorlof en við reiknum samt með því að það detti þarna einhverjir mánuðir niður alltaf þannig að það verði einhver ákveðinn sparnaður hjá ríkissjóði hvað það varðar. Þannig hefur mér liðið, hv. þm. Snorri Másson, og ég er algerlega skýr með það að ég kann ekki við þessa forræðishyggju. Ég vil sjálfstæði og sjálfræði foreldranna til að velja sjálf hvernig þau kjósa að haga sínu fæðingarorlofi vegna þess að fyrst þau gátu sammælst um að búa til barnið þá hljóta þau að geta sammælst um það hvernig þau ætla að fara með fæðingarorlofið. Það er nú bara þannig. Ég hef ekki skipt um skoðun og er hér enn af lífi og sál.