breyting á skyldubundinni skiptingu fæðingarorlofs.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa merkilegu síðari fyrirspurn sem ég sá að hann skildi ekki sjálfur og ég er orðin verulega ringluð í henni líka. Það eina sem ég veit er að við ætlum að tryggja 24 mánuði aftur í tímann þar sem foreldrarnir geta nýtt sér sitt fæðingarorlof. Við ætlum ekki að miða við áramót eða neitt slíkt heldur ætlum við að miða við það að foreldrar fái að nýta réttinn, a.m.k. þeir sem hafa átt barn þegar lögin okkar taka gildi. Ég veit ekki með þetta eldra tímabil sem hv. þingmaður er að tala um. Ég verð bara að viðurkenna algjörlega vanmátt minn hvað það varðar en ég skal glöð taka við frekari upplýsingum frá hv. þingmanni sem greinilega er líka þarna af lífi og sál eins og ég. Við getum þá deilt heilum að þessu sinni og reynt að gera þetta betra, hér erum við til. Hvað lýtur að ríkisstjórninni segi ég það alveg af öllu hjarta að við höfum talað um þetta og við ætlum að gera þetta fallega og við munum gera þetta faglega. Hver niðurstaðan verður er ekki komið í ljós (Forseti hringir.) en hér eru allir jákvæðir og hér eru allir uppi á dekki, hv. þingmaður.