157. löggjafarþing — 26. fundur, 3. nóv. 2025.
Kosning 3. varaforseta í stað Karls Gauta Hjaltasonar.
Tekið er fyrir 2. dagskrármálið, kosning 3. varaforseta í stað Karls Gauta Hjaltasonar, skv. 3. mgr. 3. gr. þingskapa, sbr. 5. mgr. 82. gr. þingskapa.
Mér hefur borist ein tilnefning, um Bergþór Ólason, 4. þm. Suðvest. Þar sem ekki eru fleiri tilnefndir en kjósa skal lýsi ég Bergþór Ólason réttkjörinn sem 3. varaforseta Alþingis og óska honum til hamingju með kosninguna og allra heilla í starfi.