húsaleigulög.
Virðulegur forseti. Ég þakka andsvarið. Þetta snýst ekki um hvort við treystum fólki til þess, við vitum að fólk kann á tölvur og það er kannski ekki erfiðara að skrá þetta, en nú á að breyta því þannig að þessir samningar verða ekki undanþegnir upplýsingalögum. Þú ert í rauninni að skrá meira heldur en nú er eða að opna sambandið þarna við leigutakann. Það mætti líkja þessu við að ráðningarsamningar yrðu ekki lengur undanþegnir upplýsingalögum (Gripið fram í.) — já, það mætti líkja því við það. Það er því þetta og svo ekki síður það að verið sé að banna breytingu á leigufjárhæð á samningstíma fyrstu 12 mánuðina. Það komu fram miklar áhyggjur af því að það myndi leiða til hærra leiguverðs og þær áhyggjur hafa verið ítrekaðar núna í kjölfar mikillar umræðu um húsnæðismálin. Hefur meiri hlutinn sem stendur að þessu máli virkilega ekki áhyggjur af því líka?