húsaleigulög.
Frú forseti. Ég mæli fyrir áliti minni hluta velferðarnefndar sem leggst gegn samþykkt frumvarpsins en að álitinu standa, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Rósa Guðbjartsdóttir og Sigríður Á. Andersen. Ég vil ítreka það sem kom fram í andsvari mínu hér fyrr í dag og þakka framsögumanni fyrir ánægjulegt samstarf í nefndinni. Þetta er akkúrat svona mál þar sem skoðanamunur er á milli aðila en ekki endilega um markmiðin heldur aðferðirnar. Í frumvarpinu er lagt upp með að auka réttarvernd og húsnæðisöryggi leigjenda með því að stuðla að aukinni langtímaleigu og fyrirsjáanleika um breytingar á leigufjárhæð. Það er auðvitað gott og gilt og flest fólk getur tekið undir mikilvægi þessa en hér er verið að ræða aðferðirnar sem stuðst er við til þess að ná þeim markmiðum fram. Efnislega mælir frumvarpið fyrir um takmarkanir á samningsfrelsi aðila. Það leggur auknar kvaðir á leigusala og aukið eftirlit og ekkert af þessu er, að mati minni hluta nefndarinnar, til þess fallið að lækka leiguverð íbúðarhúsnæðis eða bæta með öðrum hætti stöðu og húsnæðisöryggi leigjenda. Það er þess vegna sem minni hlutinn leggst gegn samþykkt frumvarpsins.
Frumvarpið á sér nokkuð langa sögu. Hana má rekja til skipunar starfshóps um endurskoðun húsaleigulaga í júní 2022 sem átti að horfa til tillagna í skýrslu átakshóps um aukið framboð á íbúðum og aðrar aðgerðir. Málið hefur því í einhverjum búningi komið fyrir þingið áður. Uppleggið í tíð fyrri ríkisstjórnar var, að því er ég hygg, nokkuð skynsamlegt og því er lýst í greinargerð með frumvarpi þáverandi innviðaráðherra. Þar segir, með leyfi forseta:
„Almennt hafa húsaleigulög verið talin veita leigjendum ríka réttarvernd en skortur á framboði á leiguhúsnæði og lök samningsstaða sem af honum leiðir verður til þess að leigjendur hafa í raun takmarkaða möguleika til að standa á rétti sínum samkvæmt lögunum. Hefur áhersla því verið lögð á að þess verði að gæta að breytingar á húsaleigulögunum dragi ekki úr framboði á leiguhúsnæði.“ — Þetta er einmitt svona kjarnaatriði. — „Almenn samstaða hefur verið um að áhrifaríkasta leiðin til að auka húsnæðisöryggi leigjenda sé að auka framboð á leiguíbúðum í samræmi við þörf enda ljóst að á meðan ekki er nægt framboð af leiguíbúðum verði áfram hætta á að leigjendur veigri sér við að standa á rétti sínum samkvæmt lögum ...“
Þetta hefur verið uppleggið hingað til og húsaleigulögin hafa gætt að þessu jafnvægi. Í húsaleigulögunum er mælt fyrir um ríka réttarvernd leigjenda en, eins og ég nefni hér, að gættu þessu jafnvægi. Ég tel að með frumvarpinu sé verið að ganga of langt. Það eru nokkur atriði sem við drögum út í áliti minni hlutans sem ég tel rétt að tæpa stuttlega á. Það er fyrsta atriðið að bann sé lagt við því að semja um að leigufjárhæðin breytist á fyrstu 12 mánuðum leigusamnings þegar um er að ræða tímabundna leigusamninga. Í frumvarpinu segir að markmiðið með þessari breytingu sé tvíþætt, annars vegar að fækka tímabundnum leigusamningum og hins vegar að auka fyrirsjáanleika. Við nefnum það í áliti minni hlutans að fækkun tímabundinna leigusamninga yfir alla línuna getur ekki verið markmið í sjálfu sér. Auðvitað er það svo að í sumum tilfellum þjónar það bæði hagsmunum leigjenda og leigusala að gera tímabundna samninga. Það er númer eitt. Í hinni síbreytilegu tilveru manneskjunnar geta slíkar aðstæður komið upp að það þjónar einfaldlega hagsmunum leigjandans sjálfs að gera tímabundinn samning. Það að fækka ótímabundnum samningum getur ekki verið markmið í sjálfu sér. Við þekkjum það m.a. úr starfsemi innlendra aðila, og við rekjum það að nokkru leyti í áliti minni hlutans, að hér eru starfandi félög sem þjóna akkúrat þessum tilgangi, þ.e. að veita skjólstæðingum sínum ákveðna þjónustu sem felst í því að leigja út íbúðarhúsnæði tímabundið. Þetta geta verið skjólstæðingar Félagsbústaða, þetta geta verið skjólstæðingar Byggingafélags námsmanna eða Félagsstofnunar stúdenta, fólk sem hefur verið úthlutað íbúðum, takmörkuðum gæðum, en þarf að uppfylla tiltekin skilyrði. Í tilfelli stúdentanna sjálfra þurfa þeir að mæta ákveðnum kröfum um námsframvindu og annað slíkt. Samningarnir eru í eðli sínu tímabundnir. Það sem meira er þá eru þessi félög náttúrlega óhagnaðardrifin sem gerir það að verkum að þau leitast eftir jafnvægi í rekstri sínum. Þau fjármagna sig að meginstefnu til í verðtryggðum lánum og leigja íbúðirnar út á kostnaðarverði, það er markmiðið. Þau leggja í varasjóð til viðhalds og borga starfsmönnunum en að öðru leyti eru íbúðir leigðar út á kostnaðarverði. Þetta hefur ekkert sætt einhverri svakalegri gagnrýni þar til þetta mál kemur upp í þessari nefnd með þessum hætti. Ég geri athugasemdir við það sem virðist hafa gerst í störfum nefndarinnar, þ.e. að meiri hlutinn gengur býsna langt í sínum fullyrðingum um þetta undanþáguákvæði 3. mgr. 2. gr. núgildandi húsaleigulaga, sem að mínu viti heimilar sérstaklega leigufélögum eins og Félagsbústöðum, Byggingafélagi námsmanna og Félagsstofnun stúdenta að leigja út íbúðir tímabundið og hafa þær verðtryggðar. Þetta er almenn heimild í gildandi lögum sem hefur tekið tillit til sérstakra aðstæðna þessara aðila og skjólstæðinga þeirra og veitt þeim þessa heimild til þess að semja sig frá ákvæðum húsaleigulaga, eins og t.d. þessu bannákvæði við vísitölutengingu. En í meðförum nefndarinnar, og þá sérstaklega í umfjöllun meiri hlutans sjálfs og með orðalagi í nefndaráliti, er búið að girða algerlega fyrir það að þessir aðilar geti nýtt sér þessa heimild. Það er búið að kippa henni úr sambandi. Það er vilji þess meiri hluta sem skipar nefndina og eftir atvikum þeirra þingmanna sem munu greiða atkvæði með þessu frumvarpi og það er miður.
Þegar Félagsbústaðir lögðu inn sína umsögn um málið á síðasta þingi voru ýmsar athugasemdir gerðar um efni frumvarpsins en kjarnaatriðið var kannski þetta: Þið megið hnykkja á því alveg sérstaklega að skjólstæðingar okkar falli undir þessa undanþáguheimild 3. mgr. 2. gr. húsaleigulaga. Þeir voru sem sagt að biðja velferðarnefnd um að taka tillit til þess með því að gera það kýrskýrt að skjólstæðingar Félagsbústaða og Félagsbústaðir geti í sinni starfsemi haldið áfram að leigja út íbúðir sínar á kostnaðarverði. Það var bón Félagsbústaða. Í umsögn Félagsbústaða, frá 14. apríl 2025, er frumvarpið sagt ógna fjárhagslegri sjálfbærni Félagsbústaða, enda grunnforsenda viðskiptalíkans þeirra að allar leigutekjur séu verðtryggðar. Félagsbústaðir voru að biðja um aukið tillit og að það yrði hnykkt á því í þessum lögum að þeir nytu þessa réttar sem þeir töldu sig einhvern veginn hafa, ef ég skil málflutninginn rétt. Félagsstofnun stúdenta og Byggingafélag námsmanna höfðu það svo sannarlega og hafa tekið undir þessar gagnrýnisraddir og getið þess sérstaklega, eins og ég rakti hér áðan, að rekstur þeirra sé í algjöru jafnvægi. Þá vaknar spurningin: Hvað eiga stjórnendur þessara félaga að gera? Ekki geta þeir farið að leigja íbúðirnar út undir kostnaðarverði? Þá er eðlilega svarið auðvitað það að reyna að áætla verðbólguna. Það er ekki svo auðvelt verkefni, sérstaklega ekki á tímum eins og þessum. Það þarf að áætla hver verðbólgan verður á samningstímanum, á næstu 12 mánuðum, og setja það einfaldlega inn í leiguverðið strax frá upphafi. Það er ekki til þess fallið að bæta stöðu leigjenda. Þetta er fyrsta atriðið og ég tel að þarna hafi meiri hlutinn gert mistök. Þó að vegferðin sé þessi þá harma ég að meiri hlutinn hafi ekki áttað sig á sérstakri stöðu nákvæmlega þessara leigufélaga.
Svo eru önnur smærri atriði þarna sem skipta líka máli. Það er í fyrsta lagi að allir leigusamningar skuli verða skráningarskyldir í grunn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og stjórnvöldum veitt sektarheimild farist það fyrir. Ég tel rétt að staldra við það vegna þess að frumvarpið er afturvirkt í ákveðnu tilliti, þ.e. að nú er skráningarskyldan færð yfir á einstaklinga sem stunda ekki útleigu íbúða í atvinnuskyni. Þetta er venjulega fólkið sem ríkisstjórninni verður oft tíðrætt um, fólkið sem er að leigja íbúð í stuttan tíma eða í litlum mæli og ekki í atvinnuskyni og gert er ráð fyrir því í öllum lögum og reglum að svo geti verið. En þarna er sem sagt þessi skráningarskylda sett á þessa einstaklinga. Hún er afturvirk að því leyti til að sektarheimildin sjálf virkjast frá 1. janúar 2027. Þá getur hinum brotlega verið gert að greiða allt að 1 millj. kr. Þetta nær til samninga sem hafa verið gerðir fyrir gildistöku laganna. Verði þessi lög samþykkt þarf hver einn og einasti leigusali, hvort heldur það er risastórt leigufélag eða bara einstaklingur að leigja húsnæði út tímabundið, að fara yfir þessi mál og senda inn sína skráningu svo að viðkomandi verði ekki sektaður. Þetta er að mínu viti líka óheppilegt. Ég óttast að einhverjir einstaklingar gerist óafvitandi brotlegir við lögin, séu einfaldlega búnir að gera leigusamning fyrir langalöngu og átti sig ekki á því að við hér á hinu háa Alþingi séum búin að setja inn einhverja skráningarskyldu og klikki þess vegna á því að skrá samninginn með umræddum afleiðingum.
Þetta eru kannski þau helstu atriði sem ég myndi vilja nefna en að öðru leyti vísa ég til álits minni hluta velferðarnefndar og þeirrar gagnrýni sem þar kemur fram. Hún byggir á sjónarmiðum sem bárust nefndinni frá aðilum sem ég tel að hefði átt að hlýða betur á.