157. löggjafarþing — 26. fundur,  3. nóv. 2025.

húsaleigulög.

108. mál
[17:06]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (andsvar):

Forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni Sigurði Erni Hilmarssyni fyrir að flytja minnihlutaálitið í þessu máli og jafnframt þakka honum fyrir góða samvinnu í nefndinni í þessu máli sem og öðrum málum. Ég vil kannski fá að taka upp þráðinn frá því í andsvari hv. þm. Kristjáns Þórðar Snæbjarnarsonar varðandi það sem kom fram um að fundinn verði annar farvegur. Segjum sem svo að ég sé amma, sem ég er, ég á fimm barnabörn, og að nú vilji ég leigja einu barnabarninu mínu litla íbúð sem ég á. Svo koma þessi nýju lög. Þá finnst mér ómögulegt að þurfa að fara að skrá þennan leigusamning svo ég ákveð að leigja ekki eignina og finna henni annan farveg sem yrði þá ekki neins konar leiga því það þýðir að ég yrði að skrá samninginn. Hvað myndi ég nú gera?

Ég myndi segja barnabarninu mínu, sem er mögulega í háskóla, að það þyrfti að finna sér aðra íbúð og að íbúðin sem ég ætlaði að leigja barnabarninu myndi þá bara standa tóm eða auð eða ég myndi mögulega bara ákveða að selja. Það er kannski ekkert um svo marga möguleika hér að ræða. Manni þykir það mjög ósennilegt að aðeins vegna þess að það kemur fram kvöð um að skrá þessa samninga þá hætti fólk bara einfaldlega við að leigja eignirnar. Hér erum við einmitt að tala um það sem hv. þm. Jónína Björk Óskarsdóttir sagði, að þetta opni á netið. Að ein skráning verði til þess að fólk hætti við, verði fúlt eða reitt eða finnist það vera íþyngjandi, má þá búast við að það hætti við að leigja eignirnar? Finnst hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni þetta vera raunverulegt vandamál? Prófar hann að setja sig í þessi spor? Jú, það kann að vera að einhverjum muni vaxa þetta í augum, ég veit það ekki en maður getur aldrei svarað fyrir alla. Ég efast þó um að þetta sé ástæðan fyrir því að löggjafinn hefði mögulega ekki átt að setja nákvæmlega þetta ákvæði inn í samninginn.