Störf þingsins.
Frú forseti. Það er mikið gagnrýnt en fátt lagt til uppbyggilegt enda hefur sárlega vantað heildarsýn og pólitíska ábyrgð á forgangsröðun í húsnæðismálum og því kemur þetta ekkert svo á óvart. Fyrsti húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar er U-beygja frá stefnuleysinu sem áður ríkti því það þarf að ná stjórn á málaflokknum. Við verðum að samhæfa aðgerðir ríkis, sveitarfélaga og fjármálastofnana og gera ungu fólki, fjölskyldum og tekjulægri hópum kleift að komast inn á markaðinn á sanngjörnum kjörum. Þetta er pólitísk forgangsröðun og ábyrgð sem talar.
Spólum aðeins til baka um eitt ár. Þá var hér ríkisstjórn sem skellti vandanum á alla aðra en sig sjálfa. Ríkisstjórn sem hafði ekki dug í að taka almennilega á uppsöfnun eigna í skammtímaleigu og fjármagnsvæðingu heimila fólks og benti bara á Seðlabankann þegar á reyndi. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur áttar sig ekki bara á vandanum heldur leggur eitthvað á borðið og áhrifin hafa strax komið í ljós.
Síðasta föstudag ákvað Seðlabankinn að hækka hámark veðsetningarhlutfalls fyrstu kaupenda í 90% og þar með er svigrúm til að lána fyrir húsnæði aukið verulega. Þetta er mikilvægt. Auknar heimildir fjármálastofnana til að veita undanþágu frá greiðslubyrðarhlutfalli er til þess fallin að gagnast tekjulægri hópum og þeim sem hafa staðið fyrir utan markaðinn þrátt fyrir stöðuga og góða greiðslugetu, duglegu fólki sem í dag vinnur baki brotnu og greiðir himinháa húsaleigu. Hverjar eru lausnir stjórnarandstöðunnar fyrir þennan hóp? spyr ég. Þær hafa alla vega ekki komið í ljós. Boltinn er nefnilega byrjaður að rúlla og hér verðum við næst að gefa hann á lánastofnanir sem hafa tök á að tryggja fleirum lán sem ættu að standast greiðslumat.
Forseti. Almenningur er langþreyttur á stöðu húsnæðismála, enda hafa stjórnvöld í gegnum tíðina algerlega vanrækt pólitíska ábyrgð sína og bara látið eins og þau gætu ekkert gert. Við hins vegar áttum okkur á ábyrgð okkar og tökum eitt markvisst skref í einu.