157. löggjafarþing — 27. fundur,  4. nóv. 2025.

Störf þingsins.

[13:51]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Fréttir halda áfram að berast af uppsögnum. Í fréttum í gær var sagt frá uppsögn 25 manns í fiskvinnslu; enn ein vísbendingin um að áhrif hækkunar auðlindagjalda séu að koma fram víðs vegar um land. Í dag voru það 38 manns hjá Icelandair, á þessu mikla verðmætasköpunarhausti. Óvissan í íslensku samfélagi er mikil um þessar mundir og óveðursskýin hrannast upp. Nægir þar að nefna ferðamannaiðnaðinn sem og málm- og kísiliðnaðinn, sem enn hefur ekki fengið tilhlýðilega áheyrn hjá ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur. Það er því ljóst að fjölmargir þeirra sem treystu á sleggjuna stóru hafa misst eða munu missa vinnuna á næstu misserum. Margt af þessu fólki er á barneignaraldri og þarf því hér eftir sem hingað til á því að halda að geta skipulagt fæðingarorlof sitt sjálft eftir því hvað hentar best hverri fjölskyldu — þetta sjálfsagða frelsi — en ekki eftir því hvað hentar sjálfskipuðum réttlætisriddurum ríkisstjórnarinnar, sem telja sig vita betur hvað hentar öllum fjölskyldum í landinu heldur en fjölskyldurnar sjálfar.

Frú forseti. Í þessu samhengi voru samskipti hæstv. félagsmálaráðherra Ingu Sæland og hv. þm. Snorra Mássonar í gær allrar athygli verð. Þar tók hæstv. ráðherra af allan vafa að hún styður hugmyndir Miðflokksins um frelsi foreldra til að meta sjálfir hvað hentar þeirra fjölskyldu og hvað er þeirra fjölskyldu fyrir bestu. Þarna opinberaðist enn einu sinni í stórum málum að hér er ekki um samhenta ríkis- eða verkstjórn að ræða. Það er forræðishyggjan sem hér ræður för, frú forseti, í öllum málum er það forræðishyggjan.