157. löggjafarþing — 27. fundur,  4. nóv. 2025.

Störf þingsins.

[13:54]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Það er rétt að taka það fram í upphafi að um er að ræða samhenta ríkisstjórn. En auðvitað erum við ekki á einu máli um allt, enda erum við í sitthvorum flokknum, það er alveg ljóst. Ríkisstjórnin kynnti engu að síður mjög ábyrgar og góðar tillögur í húsnæðismálum sem samantekið ganga út á það að ungt fólk geti komið sér þaki yfir höfuðið, stofnað fjölskyldu. Það á að gera það með því að auka framboð þannig að húsnæðismarkaðurinn nái jafnvægi og tryggja einnig hag leigjenda sem hafa orðið einna verst úti í húsnæðiskreppunni. Í öllu þessu tali um markað, framboð og eftirspurn er rétt að hafa það í huga að við erum hér að tala um heimili fólks. Við erum ekki að tala um einhverja hrávöru, hvort sem það er járn, olía eða ál. Við erum að tala um heimili fólks. Tillögurnar eru vandaðar og miða að því að ná jafnvægi, enda hefur húsnæðiskostnaður landsmanna verið einn helsti þátturinn í hækkuðu verðlagi. Það er allra hagur að ríkisstjórninni takist það ætlunarverk sitt til lengri tíma litið. Það á þá jafnt við um kaupendur, leigjendur, lánveitendur og lántakendur. Þetta er mikilvægt mál, frú forseti.

Það hefur verið undarlegt að fylgjast með því hversu langt sumir hagaðilar hafa gengið í því að að blása upp möguleg neikvæð áhrif tillagnanna og það hefur jafnvel verið endurómað hér í dag í umræðu um þessar tillögur. Það er jafnvel verið að tala um að þær komi sér illa fyrir leigjendur. En þetta eru ábyrgar tillögur og það ber auðvitað að horfa á þær í samfellu en ekki einstaka tillögu. Ég vil undirstrika hér í lok ræðu minnar að lykillinn að því að tillögurnar nái góðri lendingu og skili landsmönnum góðri niðurstöðu er að tryggja hér framboð á lóðum þannig að það verði raunveruleg aukning, hröð aukning (Forseti hringir.) í íbúðabyggingu og það er gert með samtaka átaki sveitarfélaga og ríkisstjórnarinnar. Þess vegna er auðvitað mikilvægt að hefjast handa strax við uppbyggingu Úlfarsárdalsins.