157. löggjafarþing — 27. fundur,  4. nóv. 2025.

Störf þingsins.

[14:03]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegi forseti. Ég ætla að nota þetta tækifæri til að tala um snjóadaginn mikla hérna í síðustu viku og veðurspárnar sem mér fannst vera ákaflega misvísandi og sæta frá mínum bæjardyrum séð nokkurri furðu. Eins og mál þróuðust á þessum mikla snjóadegi, þar sem afturkölluð var appelsínugul veðurviðvörun en látin standa gul veðurviðvörun þótt einhvern veginn öllum hefði mátt vera ljóst, eins og eftir hefur komið, að ekki væri meiri von á snjó. Ég sá það haft eftir starfsmanni Veðurstofunnar á þessum tíma að það var látið að því liggja að veðurviðvörunin hafi verið látin halda sér til að forða fólki frá því að fara út á götur þar sem það ætti eftir að moka, virðulegur forseti. Ég geri athugasemdir við þessi vinnubrögð af hálfu Veðurstofunnar að einhverju leyti. Þessi veðurviðvörun olli nokkru tjóni hér í Reykjavík, á höfuðborgarsvæðinu, þar sem ekki kyngdi niður meiri snjó eftir að veðurviðvörunin var gefin út. Ég vildi bara henda þessu hérna aðeins inn í umræðuna til umhugsunar fyrir þingið og viðeigandi stofnanir sem um ræðir.

Ég get hins vegar ekki látið hjá líða að taka líka þátt í skemmtilegri umræðu sem varð hér um fyrsta húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar, þessa samheldnu ríkisstjórn. Hér komu tveir hv. þingmenn úr sitt hvorum ríkisstjórnarflokknum og líta þessi mál mismunandi augum. Annar telur aðgerðir Seðlabankans hafa mikla þýðingu fyrir ungt fólk, á meðan hinn benti réttilega á, að mínu mati, að þessi breyting á lánaskilyrðum Seðlabankans mun ekki hafa nein áhrif á ungt fólk svo nokkru nemi. Ég óttast í þessu tilfelli að menn séu, eins og stundum, að oftúlka dóma Hæstaréttar og nú með þeim hætti að bankar og aðrir veigri sér við að setja fram einhver skilyrði um vexti eða að verðtryggja eða binda húsnæðislánavexti. Það er röng nálgun á þessi mál. Fyrst og fremst í þessum málum held ég að þurfi að tryggja samningsfrelsi en ekki skerða samkeppni á húsnæðislánamarkaðnum (Forseti hringir.) eins og tillögur ríkisstjórnarinnar eru svo sannarlega að gera og munu gera nái þær fram að ganga.