staðfesting ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Með þessari þingsályktunartillögu er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta fyrir Íslands hönd þrjár ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar frá árinu 2024–2025 um breytingar á 9. viðauka við EES-samninginn, þann mikilvæga samning. Ég mun gera stutta grein fyrir efni þessara ákvarðana. Í fyrsta lagi er það ákvörðun nr. 71/2024 sem fellir inn í EES-samninginn reglugerð 2019/1238, um samevrópska séreignarsparnaðarafurð, hina svokölluðu PEPP-reglugerð, bara þannig að við höfum það öll á hreinu. Reglugerðin kynnir til leiks nýtt valkvætt sparnaðarform sem styðja á innlend lífeyrissjóðakerfi sem fyrir eru en ekki koma í þeirra stað, bara mikilvægt að draga það fram líka. Markmið hennar er að stuðla að auknum fjárfestingum innan EES og auka ekki síður valmöguleika neytenda varðandi sveigjanlega sparnaðarvalkosti sem eru flytjanlegir á milli EES-ríkja. Einnig verður erlendum þjónustuveitendum heimilt að bjóða upp á þessa afurð á Íslandi.
Fjármála- og efnahagsráðherra mun leggja fram frumvarp á þessu löggjafarþingi til innleiðingar á reglugerðinni. Það er gert ráð fyrir að fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands verði síðan falið eftirlit með lögunum. Í öðru lagi er það ákvörðun nr. 70/2025 sem fellir inn í EES-samninginn reglugerð 2019/2033, um varfærniskröfur fyrir verðbréfafyrirtæki og tilskipun 2019/2034 um varfærniseftirlit með verðbréfafyrirtækjum. Þessar gerðir einfalda mikilvægt regluverk ESB um varfærniseftirlit með verðbréfafyrirtækjum og skilja þau í megindráttum frá reglum um varfærniseftirlit með bönkum og öðrum lánastofnunum til að taka betur mið af sérstöðu hvorrar tegundar fyrirtækja. Reglugerðin fjallar um kröfur til eigin fjár, lausafjár, stórra áhættuskuldbindinga og upplýsingagjafar. Tilskipunin fjallar einnig um stofnfé, starfskjarastefnu og eftirlit með verðbréfafyrirtækjum. Fjármála- og efnahagsráðherra mun einnig leggja fram frumvarp til nýrra laga um varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja til þess einmitt að innleiða þessar tvær gerðir.
Í þriðja lagi er um að ræða ákvörðun nr. 118/2025 sem fellir inn í EES-samninginn reglugerð nr. 2023/606, um breytingu á reglugerð um evrópska langtímafjárfestingarsjóði. Markmiðið er að gera langtímafjárfestingarsjóði meira aðlaðandi fyrir fjárfesta og eignastýringaraðila. Þetta er gert m.a. með því að endurskoða kröfur um fjárfestingarstefnu og rekstrarskilyrði evrópskra langtímafjárfestingarsjóða og gildissvið hæfra fjárfestingarreglna. Fjárfestingarmöguleikar rekstraraðila slíkra sjóða eru víkkaðir út, m.a. í innviðum, í hugverkum og nýsköpunarfyrirtækjum á fjármálamarkaði og opnað er líka fyrir frekari fjárfestingar í öðrum sjóðum um sameiginlega fjárfestingu.
Innleiðing gerðarinnar hér á landi kallar á breytingu á lögum um Evrópska langtímafjárfestingarsjóði, nr. 115/2022. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur þegar lagt fram frumvarp til innleiðingar á þeirri reglugerð. Það er 147. mál á þessu þingi.
Virðulegi forseti. Haft var samráð við utanríkismálanefnd Alþingis vegna upptöku umræddra gerða í samninginn sem gerði ekki athugasemdir við upptöku þeirra á þann hátt sem þingsályktunartillagan tilgreinir. Auk þess var haft samráð við efnahags- og viðskiptanefnd er varðar hina svokölluðu PEPP-reglugerð, sem sömuleiðis gerði ekki athugasemdir við upptöku þeirrar reglugerðar. Nánari upplýsingar, m.a. um áhrif innleiðingargerðanna, má finna í meðfylgjandi tillögu til þingsályktunar og ég legg, virðulegi forseti, til að þegar umræðu þessari lýkur þá verði þessari tillögu vísað til hv. utanríkismálanefndar.