157. löggjafarþing — 27. fundur,  4. nóv. 2025.

fullgilding samnings um loftslagsbreytingar, viðskipti og sjálfbæra þróun.

219. mál
[14:21]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Fyrir það fyrsta þá höfum við í þessari ríkisstjórn alltaf sagt: Það skiptir ekki máli hvaðan gott kemur. Það sem ég sé einmitt í þessum samningi er að það eru þarna hvatar. Það er ekki verið að leggja íþyngjandi álögur á atvinnulífið. Það er verið að auka frelsi. Það er verið að ýta undir neytendavernd á þeim tímum sem nú eru. Það er alveg ljóst að okkur hv. þingmann greinir á. Ég er ekki í afneitun þegar kemur að loftslagsbreytingum eins og staðan virðist vera af hálfu Miðflokksins. Það er bara alveg á hreinu. Við erum hér að fara leið sem einmitt ýtir undir — og við sýnum fram á það af því að stóru ríkin hafa ekki haft burði í að ná samkomulagi. Við þessi fjögur ríki, líkt þenkjandi ríki, frekar mikil frelsisríki — ef við horfum á viðskipti og þjónustu, verslun með vörur og þjónustu yfir landamæri, hvort sem það er Sviss, Nýja-Sjáland eða Kosta Ríka, þá erum við með þessu að reyna að draga fram og undirstrika það að vera með hvata, ekki íþyngjandi álögur heldur hvata, til að ýta undir umhverfisvernd og umhverfisvitund. Mér finnst það gott mál. Þess vegna er ég að leggja þetta fram. Ég lagði mitt sjálfstæða mat á þennan samning og ég tel að í stóra samhenginu skipti þetta máli, ekki síst þegar við erum nýbúin að fá þá niðurstöðu að losun Íslands hefur dregist saman að undanförnu. Ég held að við ættum að fagna því skrefi en við þurfum líka að sýna þann metnað að halda áfram, ekki að koma með pólitíkina að utan sem setur hlemminn á alla loftslagsumræðuna og segir bara: Heyrðu, við megum ekki tala um loftslagsmál. Ég er ekki þar. Ég tel að við þurfum að bera ábyrgð og sýna ábyrgð, m.a. með því að leggja fram svona mál sem er einmitt ekki íþyngjandi. Þetta er frelsismál. Við erum að nota markaðinn til að ýta undir umhverfisvitund fólks, hvort sem það eru neytendur eða aðrir. Ég hefði frekar haldið, miðað við bakgrunn hv. fyrirspyrjanda, að hún myndi fagna þessu framtaki.