fullgilding samnings um loftslagsbreytingar, viðskipti og sjálfbæra þróun.
Virðulegi forseti. Ég veit ekki alveg hvernig á að taka þessu. Það má ekki tala við Evrópusambandið. Svo eru hér lönd sem eru ekki í Evrópusambandinu og það má ekki tala við þau þó að þau séu líkt þenkjandi og vinir ykkar. Við hverja má tala? Má kannski bara taka við fyrirskipunum frá Washington eða einhverjum öðrum stórveldum? Er það þannig pólitík sem við viljum rækja? Nei. Og eru hér komnar einhverjar íþyngjandi aðgerðir á íslensk fyrirtæki og atvinnulíf í nafni loftslagsaðgerða? Bara alls ekki. Markmið samningsins er þvert á móti að gera fyrirtækjum hægara um vik í viðskiptum á milli samningsaðila með umhverfisvörur og umhverfisþjónustu. Ég hefði haldið alla jafna að fyrir okkur frelsisþenkjandi fólk að þetta væri fagnaðarefni. Og ekki koma með einhverjar falsfréttir eða upplýsingaóreiðu. Þessi samningur kemur ekkert í veg fyrir það að Íslendingar fari í vinnslu eða eitthvað slíkt á Drekasvæðinu. Hann er ekkert að koma í veg fyrir það, það er bara pólitísk ákvörðun. Þessi samningur kemur ekki í veg fyrir það á einn eða neinn hátt. Noregur var í samskiptum við okkur í þessu máli en vegna óeiningar innan síðustu ríkisstjórnar var hætt við að fara í þetta, m.a. út af því að menn vildu ekki koma í veg fyrir að það væri hægt að greiða jarðefnaeldsneyti mikið niður. Það sem ég hins vegar tek með í þetta allt saman og ástæðan fyrir því að við erum m.a. að ýta undir rafmagnsbíla er að við notum okkar eigin orku, okkar eigin framleiðslu en séum ekki að borga fyrir einhverjar innfluttar vörur, hvort sem það heitir jarðefnaeldsneyti eða eitthvað annað. Þetta er í þágu Íslands og engra annarra hagsmuna.
Ég hvet Miðflokkinn til að vakna af þessum þyrnirósarsvefni þegar kemur að loftslagsmálum en ekki fá bara fyrirmæli að utan.