þekkingarsetur til undirbúningsnáms fyrir börn af erlendum uppruna.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur andsvarið og eins og ég nefndi áðan þá flækist þetta: Við erum stórt land og við búum víða og ekki svo margir á hverjum stað. Hugmyndafræðin þarna er ekki síst sú að þetta létti undir með hverjum og einum skóla. Þó að margir skólar hafi verið að standa sig býsna vel þá eru áskoranir eða verkefnin af svo margbreytilegum toga þegar kemur að því að taka á móti börnum af erlendum uppruna því bakgrunnur þeirra getur verið svo margbreytilegur. Því sé ég ekki síður fyrir mér að þarna séu ekki bara kennarar að kenna íslensku heldur líka að greina stöðu barnanna. Við vitum það að til að mynda börn sem koma frá Palestínu í dag hafa varla gengið í skóla. Það hefur varla verið rekinn skóli þar. Þegar við fórum að taka á móti Úkraínubörnunum þá var það líka þannig statt með Úkraínubörnin. Þau höfðu mörg hver ekki farið inn í raunverulegan skóla í langan tíma, því að skólum í Úkraínu var lokað í Covid. Þau höfðu þó verið í fjarkennslu. Það að greina bæði hvar börnin standa námslega og þroskalega en ekki síður út frá ýmsum öðrum áskorunum, sálfræðilegum, félagsfræðilegum og slíkum, held ég að ekki væri síðri hjálp fyrir kennarann, hvort sem það er sérstök deild inni í viðkomandi skóla á viðkomandi svæði eða bara hjá viðkomandi bekkjarkennara, að fá greiningu með barninu þegar það mætir, enda sé það þá búið að vera í einhvern ákveðinn tíma í slíkum skóla eða undir handleiðslu einstaklinga sem hafa þessa þekkingu.
Nú höfum við lagt mikið upp úr því til að mynda að leikskólarnir komi með ákveðna skilaskýrslu þegar börnin okkar fara í grunnskóla. Milli stiga í grunnskólunum okkar færa kennararnir ákveðna skýrslu til næsta umsjónarkennara. Það sama á orðið við með framhaldsskólana, þeim eru send ákveðin gögn. Þegar við fáum börn af erlendum uppruna inn í skólana hér er engin slík skýrsla, engin slík kunnátta, engin slík þekking. Það kann að vera að það fylgi einhverjum en ég ætla að leyfa mér að efast um að það fylgi eitthvað slíkt palestínsku börnum eða mörgum börnum frá Úkraínu sem hafa ekki verið lengi. Auðvitað getur það verið mismunandi. Það getur vel verið að í einhverjum tilfellum sé hægt að óska eftir slíkum upplýsingum frá Póllandi með pólskum börnum. Það kann vel að vera. Þarna held ég þó að hægt væri að létta mjög undir með bæði bekkjarkennurum og einstökum skólum ef slík greining lægi fyrir þegar börnin hefja nám í viðkomandi skóla.