þekkingarsetur til undirbúningsnáms fyrir börn af erlendum uppruna.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Nú velti ég fyrir mér, af því að ég veit að margir kennarar þrá að fara í endurmenntun og sækja reglulega um að komast í námsleyfi — að þeir fái stuðning til að gera það. Ég get alveg ímyndað mér, þótt ég hafi ekkert fyrir mér í því, að það séu ótal kennarar sem brenna fyrir hagsmunum þessara barna úti um allt land. Ég velti því fyrir mér hvort hér væri e.t.v. hægt að fara þá leið að styðja við þessa áhugasömu kennara til að einmitt öðlast þessa menntun til að geta aðstoðað börnin frekar við þetta í sínu nærumhverfi þar sem þau búa og að þetta sé þá þjónusta sem dreifist jafnt yfir landið óháð því hvar börnin búa. Því að enn þykir mér þessari spurningu varðandi landsbyggðina vera frekar ósvarað. Ég trúi því að það sé mjög gott fyrir börn að byrja strax að aðlagast því umhverfi og eignast vini þar sem þau koma til með að búa og hefja strax þá vegferð sem þau þurfa að fara í til að fóta sig í nýju umhverfi. Því velti ég fyrir mér: Væri það kannski leið líka að við myndum setja meira fjármagn í að styðja kennara landsins við að fara og sérmennta sig í að hjálpa þessum krökkum að fóta sig betur í samfélaginu frekar en að stefna þeim öllum til Reykjavíkur?