157. löggjafarþing — 27. fundur,  4. nóv. 2025.

þekkingarsetur til undirbúningsnáms fyrir börn af erlendum uppruna.

12. mál
[15:40]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir að koma með þetta mál inn í þingið. Umræðurnar hafa verið nokkuð góðar og byrjuðu á mjög jákvæðum nótum. Síðan hljóp smá hiti í húsið en þetta er nú kannski aðeins að lægja á ný. Þetta er auðvitað hrikalega þörf umræða út af stöðunni sem við erum komin í og vegna menntamálanna almennt. Ég var svolítið sammála hv. þm. Pawel Bartoszek áðan með þekkingarsetrið, að móttökuskóli sé kannski heppilegri útfærsla, en látum það liggja á milli hluta til að byrja með.

Mig langaði að koma inn á nokkra punkta og byrja fyrst að nefna málleysið, sem rætt var hérna áðan og mér fannst mjög áhugavert. Hv. þm. Jón Pétur Zimsen reifaði viðbrögðin við því þegar þetta kom fram í kosningabaráttunni síðast en þáverandi ráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, skrifaði grein um þetta á sínum tíma, þ.e. um móttökuskóla. Viðbrögðin voru svakaleg, alveg geigvænleg, en samt frá mörgum öðrum en kennurum. Svo fullrar sanngirni sé gætt voru margir kennarar ekkert endilega hrifnir af þessu en margir voru mjög hrifnir af þessu. Það sem ég tók sérstaklega eftir, ekki síst þegar ég fór að skoða þetta í baksýnisspeglinum af því að internetið gleymir engu, var að þá notuðu margir kennarar einmitt orðið málleysi. Ég held að það sé alls ekki notað til þess að tala illa um börnin, alls ekki, heldur erum við bara að tala um stöðuna sem slíka. Ég man eftir því að fyrir mörgum árum, þegar ég var reyndar bara unglingur, hélt ég þrjá fyrirlestra um Ísland í menntaskólum í Frakklandi. Ég veit ekki alveg hvernig ég kom mér í þá stöðu en þetta var besta mál. Það sem ég þurfti að gera allan daginn var að sitja í þessum frönsku skólum. Auðvitað var mjög skrýtið að eyða sumarfríinu sínu í skóla en maður gerir bara það sem manni er sagt. Ég kunni ekki frönsku á þeim tíma og er reyndar ekki sérstaklega sleipur í henni núna en ég gerði mitt besta.

Ég hugsaði til baka þegar ég var að reifa þetta mál og undirbúa mig fyrir þessa umræðu, að þarna sat ég skjannahvítur í ansi hvítum, vestrænum menntaskóla, einkaskóla í Frakklandi og við svona nokkuð sammála um flest. Ég skildi náttúrlega ekki bofs sem var í gangi þarna. Þegar ég var búinn með minn 20 mínútna fyrirlestur hafði ég ekkert meira fram að færa svo ég fór að hugsa hvernig þetta væri ef maður sæti nú þarna inni heilan vetur. Að sjálfsögðu kemur margt gott út úr því að þurfa að umgangast krakkana, en hvernig verður námið, bæði fyrir börnin sem eru af erlendum uppruna en líka að sjálfsögðu fyrir íslensku börnin, af því við viljum að allir njóti jafnræðis og sömu menntunar og sömu tækifæra? Það hlýtur að vera lokamarkmið okkar. Þess vegna er þetta gott samtal sem við eigum í núna í dag og þetta er alveg hörkuerfitt samtal. Það varð erfiðara eftir því sem við fórum að skiptast á skoðunum og kannski að einhverju leyti smá hártogunum. Það eru svo margar áskoranir í menntakerfinu núna. Vandamálin eru mörg og bekkirnir eru fjölmennir og oft og tíðum erfiðir. Símarnir eru svo líka annað mál í þessu og fólk er farið að brydda upp á ótrúlegustu hugmyndum eins og að vera bara með hlaupabretti og hvolpa og eitthvað til þess að reyna að halda athygli því það er hreinlega erfitt að kenna börnum að lesa í dag, af því að vandamálin eru svo mörg.

Með þessari þingsályktunartillögu er hv. þingmaður að reyna að gera það sem við erum farin af stað með líka með þessum móttökudeildum, að reyna að draga úr þessu rosalega vandamáli sem er að einhver hluti nemendanna í bekknum talar ekki tungumálið. Það er náttúrlega eitthvað sem hreinlega gengur ekkert upp. Þess vegna þurfum við, eins og við höfum gert með þessum móttökudeildum sem eru mjög svo góðra gjalda verðar, að gangast við þessum raunveruleika og hlusta á kennarana sem eru inni í þessum skólum. Ég hitti einmitt kennara, hvort það hafi ekki verið síðustu jól, í jólaboði. Hann var þá starfandi í móttökudeild í Breiðagerðisskóla, mínum gamla grunnskóla, og það var bara svolítið sjokkerandi að heyra sögurnar af ástandinu, svona þegar maður heyrir af því í fyrsta sinn, að þetta væri mjög erfitt og álagið rosalegt. Ég held að álag á íslenska kennara sé alveg nóg fyrir þannig að þetta er eitthvað sem við þurfum að taka miklu meira og betra samtal um.

Svo stöndum við frammi fyrir spurningunni um miðstöð, eitt setur, hvar þetta eigi að vera, af því að við erum með þessar deildir. Ég held að við séum ekki að fara að finna einhverja lausn á því hér í dag, hvort sé betra. Að sjálfsögðu tek ég undir með vini mínum og hv. þm. Jóni Pétri Zimsen. Það er erfitt að bera fálkann og fara að tala um fleiri stofnanir og aukin ríkisfjárútlát, en einhvers staðar þurfum við að gera einhverja hluti fyrir börnin okkar. Hvort réttara sé að bæta við deildum og hver hin raunverulega lending verður held ég að skipti ekki öllu máli heldur bara að þetta samtal sem við eigum í núna sé tekið því að við vitum að þetta virkar.

Þetta hefur líka tekið tíma að virka. Þegar ég var ungur maður átti ég vin sem hafði farið mjög ungur í móttökuskóla í Danmörku. Það voru ekkert fallegar sögur þar, bara alls ekki, en það er kannski líka eitthvað stofnanavandamál sem frændur vorir þurfa svolítið að glíma við, og sín innri mein. Síðan hefur þetta komist í mjög fínt lag. Hér áðan var talað um Noreg og þar hefur þetta gefist virkilega vel. Það gefur augaleið að ef við náum að móta börn ung — auðvitað er það miserfitt eftir því hvenær og hvar þau koma inn og á hvaða aldri — þannig að þau kunni tungumálið þegar þau koma inn í skólastofuna, þá hlýtur það að gefa augaleið að þetta ætti að ganga miklu betur.

Eitt annað langar mig að nefna sem ég var mjög ánægður með að væri komið hingað inn. Ég man ekki hver það var, og ég biðst forláts, sem talaði áðan um tómstundirnar og félagsmiðstöðvarnar, hvort það hafi verið hv. þingmaður sem þannig lagði svolítið upp stoðsendingu fyrir okkur og kann ég hv. þingmanni bestu þakkir fyrir. Mér fannst mjög gott að þarna notaði hún orðið óformlegt, þetta séu svona óformlegri aðstæður, af því að þrátt fyrir að þetta sé ekki fullkomið — það er ekkert fullkomið við það, frú forseti, að vera með einhverjar móttökudeildir sem krakkarnir á einhverjum tímapunkti dvelja á, hvort sem það er um einhvern tíma eða skamman tíma á hverjum degi, frá hinum krökkunum — þá eru tómstundir og íþróttir, eins og hv. þm. Rósa Guðbjartsdóttir kom inn á líka, alger draumastaður til að færa þau saman í miklu — og ég ætla aftur að hrósa þessu orði — óformlegra umhverfi. Þarna eru bara krakkar í „pool“ og pílukasti og þetta verður einhvern veginn allt miklu léttara. Þá er enginn einhvern veginn að aftra öðrum. Ég veit að krakkarnir tala ekki þannig en við vitum að þetta getur alveg orðið þannig ef þeir eru í sömu skólastofunni og einn kennari er að reyna að kenna þessum eina nemanda, ja, ekki Laxness, það er búið, en einhverja sögu þó og svo er sami kennari að tala við nemanda hinum megin í stofunni sem kann kannski ekki einu sinni tungumálið.

Þetta er hrikalega mikið og marglaga mál en mér sýnist við þó öll vera á nokkuð jafnri línu með þetta. Ég ætla að vera alveg heiðarlegur með það, frú forseti, að ég hef ekki brjálæðislega sterkar skoðanir á því í bili hvort betra sé að hafa einhvern móttökuskóla en hann gæti vissulega verið miðlæg stöð til að koma þessu betur út í samfélagið. Síðan þarf þetta náttúrlega líka að vera fyrir alla, eins og hv. þm. Ása Berglind Hjálmarsdóttir kom inn á áðan. Að sjálfsögðu ætlum við ekki að fara að gera greinarmun á börnum, hvort sem þau eru á höfuðborgarsvæðinu eða á Suðurlandi. Ég tala nú ekki um eins og fyrir þingmann af Suðurlandi þar sem er enginn smá fjöldi af fólki af erlendum uppruna sem er að mörgu leyti að halda uppi heilu samfélögunum þar. Við viljum auðvitað að það sama gangi yfir alla í þessu.

Ég held að ég sé mögulega búinn með þessa punkta mína. Ég ætla bara aftur að þakka fyrir þessa umræðu. Hún hefur verið mjög gagnleg. Ég ætla reyndar að segja að ég var mjög óánægður með svar hæstv. mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur um þessa móttökuskóla. Það var alger stofnanafroða þar sem engu var svarað og engar lausnir fundnar. Ég var mjög óánægður með það en umræðurnar hafa verið töluvert betri í dag.