157. löggjafarþing — 28. fundur,  5. nóv. 2025.

Störf þingsins.

[15:15]
Horfa

Eiríkur Björn Björgvinsson (V):

Virðulegur forseti. Hin árlega alþjóðlega ráðstefna Hringborð norðurslóða, Arctic Circle, fór fram fyrir um hálfum mánuði síðan. Ráðstefnan hefur verið haldin frá árinu 2013 og verið vettvangur þar sem allir, ekki bara stjórnvöld og vísindamenn, heldur líka fulltrúar fyrirtækja, stofnana, frumbyggja, námsmanna og almennings, geta tekið þátt í umræðum um framtíð norðurslóða. Má segja að mikilvægi ráðstefnunnar hafi aukist ár frá ári, ekki síst núna á þessum viðsjárverðu tímum þegar norðurslóðir eru hvað mest í umræðunni. Ég fór sem formaður Íslandsdeildar þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál og sat fjölda viðburða og fyrirlestra á ráðstefnunni. Of langt mál væri að fara yfir allt sem þar fór fram, mig langar þó að nefna hér tvennt.

Í fyrsta lagi hina miklu umræðu sem fram fór um varnar- og öryggismál á norðurslóðum, sem reyndar hefur alltaf verið nokkuð frá því að ég byrjaði að taka þátt í umræðunni um norðurslóðir fyrir um 15 árum síðan. Í dag finn ég fyrir því að fólk er meira að velta fyrir sér stöðu Íslands á norðurslóðum í þessu ljósi, þá ekki síst þekkingu okkar og reynslu af jákvæðum samskiptum við þjóðir, bæði austan og vestan hafs.

Í öðru lagi vakti athygli mína umræðan og sú mikla áhersla sem lögð er á lýðræðisleg réttindi þeirra samfélaga sem eiga allt undir því að friður og sátt ríki á svæðinu. Ekki ný umræða en mjög undir áhrifum af yfirlýsingum m.a. ákveðinna ráðamanna og ákveðinnar ögrunar gagnvart stjórnvöldum sem fara einnig með stjórn á svæðinu.

Virðulegi forseti. Við Íslendingar erum í stóru hlutverki þegar kemur að því að halda á lofti mikilvægi samstarfs lýðræðisríkja og minni samfélaga á norðurslóðum. Það gerum við auðvitað best með því að hafa okkar sterku rök við hið alþjóðlega borð. Það er horft til okkar.