Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Það er gömul saga og ný að heimilin í landinu séu að kikna undan háum vöxtum. Þannig stóð langafi minn í ræðustól á Alþingi árið 1931 og mælti fyrir ályktun um að ríkisstjórnin hlutaðist til um að bankar og aðrar lánastofnanir lækkuðu vexti, sem þá voru 5%, hið allra bráðasta. Á þessum tíma hafði kreppan mikla nýlega skollið á heimsbyggðina og hrun blasti við mörgum atvinnugreinum. Nú eru algengir vextir á óverðtryggðum húsnæðislánum rúmlega 9% og hafa verið í hæstu hæðum frá seinni hluta ársins 2023. Þótt efnahagslegar aðstæður séu um margt ólíkar nú og þær voru fyrir 94 árum eru afleiðingar hárra vaxta þær sömu. Óreiða í stefnu fyrri ríkisstjórnar í húsnæðismálum, þar sem markaðnum var einum ætlað að svara eftirspurn eftir ólíkum gerðum húsnæðis, hefur beðið skipbrot. Þessi óreiða er meginástæða þess að miklar hækkanir á verði húsnæðis bæði til kaups og leigu hafa drifið verðbólguna áfram.
Ríkisstjórnin hefur nú birt fjölbreyttar aðgerðir í húsnæðismálum og boðar frekari aðgerðir á fyrri hluta næsta árs. Aðgerðirnar eiga að auðvelda fyrstu kaupendum að komast inn á húsnæðismarkaðinn og stuðla að fjölgun leiguíbúða á viðráðanlegu verði. Þá á ríkisstjórnin í viðræðum við Seðlabankann um nýjar viðmiðanir við ákvörðun vaxta húsnæðislána. Flokkur fólksins hefur að auki unnið að því innan meiri hluta borgarstjórnar að nýtt land verði rutt fyrir þúsundir íbúða í Úlfarsárdal. Uppbygging þar getur vonandi hafist strax á næsta ári. Það er ekki nóg að einblína á efnahagslegan stöðugleika. Við verðum líka að standa vörð um félagslegan stöðugleika.