157. löggjafarþing — 28. fundur,  5. nóv. 2025.

Störf þingsins.

[15:33]
Horfa

Elín Íris Fanndal (Flf):

Virðulegur forseti. Það er brýnt að ræða óréttlæti í garð eldra fólks í núverandi fyrirkomulagi veikindaréttar á íslenskum vinnumarkaði. Í dag byggir veikindaréttur ekki á starfsævi fólks heldur á því hversu lengi hver og einn hefur verið hjá þeim vinnuveitanda sem starfsmaður þegar veikindi kunna að koma upp. Þetta getur bitnað harkalega á eldra fólki sem hefur verið í áratugi á vinnumarkaði, unnið lengi hjá sama atvinnurekanda en skiptir einhverra hluta vegna um starf á síðari hluta starfsævinnar. Þetta fólk hefur lengi greitt skatta sína og gjöld en er á vissan hátt fært á byrjunarreit við það eitt að skipta um starf. Þegar fólk veikist eftir stuttan starfsferil, burt séð frá aldri, á það lítinn og jafnvel engan veikindarétt. Þeir sem hafa unnið samfleytt í áratug á sama vinnustað njóta hins vegar 12 mánaða veikindaréttar á launum. Þetta er auðvitað ekki í lagi, að fólk glati réttindum sínum við það eitt að skipta um atvinnu. Áunnin réttindi á vinnumarkaði ættu að fylgja einstaklingnum jafnvel þó að hann kjósi eða neyðist til þess að skipta um starf.

Við höfum þegar viðurkennt að lífeyrisréttur fylgi fólki á milli vinnustaða. Það sama ætti vitanlega að gilda um rétt til launa vegna veikinda. Ég er þess fullviss að Inga Sæland, hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra, muni skoða þetta mál. Hún hefur ávallt staðið vaktina með fólkinu í landinu. Það á að sjálfsögðu að sýna ævilöngu vinnuframlagi og réttindum eldra fólks virðingu en ekki líta á þau sem kostnað. Virðing fyrir öllu fólki er kjarni þess samfélags sem Flokkur fólksins vill eiga þátt í að byggja.