meðferð sakamála o.fl.
Frú forseti. Markmið þessa frumvarps er að vinna gegn skipulagðri glæpastarfsemi og gegn fjármögnun hryðjuverka en ekki síður að endurheimta ávinning af slíkri starfsemi. Með samþykkt frumvarpsins er verið að vinna að því að uppfylla enn fremur alþjóðlegar skuldbindingar sem hvíla á okkur Íslendingum og breyta lögunum í samræmi við það sem tíðkast á Norðurlöndunum. Við veitingu slíkra valdheimilda er mjög mikilvægt að gæta jafnvægis á milli þeirra hagsmuna sem eru undir; annars vegar réttaröryggi borgaranna og hins vegar hagsmuna samfélagsins að upplýsa um ólögmæta brotastarfsemi. Við teljum að í þessu frumvarpi sé það jafnvægi slegið með réttum tón enda lúta ákvarðanir um málefnið ströngum lagaramma um meðferð sakamála og því ætlum við að greiða atkvæði með þessu frumvarpi.