húsaleigulög.
Frú forseti. Markmið frumvarpsins er sagt vera að auka réttarvernd og húsnæðisöryggi borgaranna en leiðin sem er farin felst í því að takmarka samningsfrelsi þeirra. Eftir gildistöku þessa frumvarps verður fólkinu í landinu óheimilt að semja um sín kjör þegar kemur að húsaleigusamningum með þeim hætti sem það kýs. Í þessu felst auðvitað forræðishyggja. Það er verið að leggja auknar kvaðir á borgarana, aukið eftirlit og færa í lög refsiheimildir sem eru allt að því afturvirkar. Það er því fyrirséð að samþykkt frumvarpsins muni hafa þveröfug áhrif, ekki mæta þeim markmiðum sem að er stefnt heldur miklu frekar minnka framboð á markaði og hækka húsaleigu. Því mun Sjálfstæðisflokkurinn greiða atkvæði gegn þessu frumvarpi.