157. löggjafarþing — 28. fundur,  5. nóv. 2025.

húsaleigulög.

108. mál
[15:48]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Þingflokkur Framsóknar styður þetta mál heils hugar. Hér er verið að leggja til jákvæðar breytingar varðandi húsaleigumarkaðinn. Það sem skýtur hins vegar skökku við eru áform ríkisstjórnarinnar varðandi að hækka skattlagningu leigusala, sem er annað mál sem mun leiða til þess að leigan mun hækka og jafnvel að leigusalar muni draga eignir sínar af leigumarkaði. Það er kannski ekki markmiðið sem við viljum stefna að og við gjöldum varhuga við því.