samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta velferðarnefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Með frumvarpinu er lagt til að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verði lögfestur í heild sinni.
Mig langar að víkja aðeins að samráði. Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir og minnisblað félags- og húsnæðismálaráðuneytisins. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis. Málið var áður lagt fram á 156. löggjafarþingi og hafði nefndin hliðsjón af umsögnum sem bárust þá og minnisblaði félags- og húsnæðismálaráðuneytisins.
Frumvarpið var lagt fram, eins og áður segir, á 156. löggjafarþingi og afgreitt frá velferðarnefnd með áliti meiri hluta nefndarinnar til 2. umræðu en málið hlaut ekki afgreiðslu. Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er það endurflutt óbreytt. Til viðbótar við þá umfjöllun sem málið hefur nú fengið vísar meiri hlutinn til fyrri umfjöllunar sinnar um málið og áherslna sem fram koma í áðurnefndu áliti frá 156. löggjafarþingi.
Þá að stöðu innleiðingar einstakra ákvæða samningsins í íslensk lög. Nefndin fjallaði um stöðu innleiðingar einstakra ákvæða samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að frá því að samningurinn var fullgiltur af Íslands hálfu hafi verið gerðar ýmsar lagabreytingar og ný lög sett sem miða að því að innleiða samninginn og aðlaga íslenska löggjöf að honum. Með lögum um breytingu á ýmsum lögum til undirbúnings fullgildingar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hafi orðalagi fjölda ákvæða verið breytt til að samræma hugtakanotkun samningsins auk þess sem gerðar hafi verið efnislegar lagabreytingar. Enn fremur hafi verið sett ný lög til að uppfylla betur skyldur Íslands samkvæmt samningnum, svo sem lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Í minnisblaði félags- og húsnæðismálaráðuneytis sem nefndinni barst 17. október 2025 kemur fram að á árinu 2020 hafi vinnuhópur úr sex ráðuneytum tekið saman yfirlit um hverja og eina grein samningsins ásamt tilvísun til ákvæða í lögum og reglugerðum og til hvaða aðgerða þyrfti að grípa til að mæta áskorunum við innleiðingu samningsins. Samantektin hafi verið uppfærð í nóvember 2022 en síðan þá hafi verið gerðar nokkrar veigamiklar breytingar á lagaumhverfi. Þar megi nefna tilkomu laga um Mannréttindastofnun Íslands og ályktun Alþingis um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024–2027 sem samþykkt var 20. mars 2024 og felur í sér safn 60 aðgerða til að koma í framkvæmd ákvæðum samningsins. Stefnt sé að því að halda áfram vinnu við áætlunina til ársins 2030.
Með minnisblaði ráðuneytisins fylgdi uppfærð samantekt þar sem tekið hafði verið tillit til breytinga fram að yfirstandandi löggjafarþingi. Einnig var getið þingmála sem boðuð eru á þingmálaskrá á 157. löggjafarþingi, svo sem nýrra laga um réttindavernd fatlaðs fólks. Meiri hluti nefndarinnar telur auðsýnt af samantekt ráðuneytisins að gengið hafi vel að innleiða ákvæði samningsins í íslensk lög. Á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar sé að finna ýmis þingmál sem boðuð eru á yfirstandandi löggjafarþingi til að innleidd verði enn frekar ákvæði samningsins í lög eða þau færð til betri vegar, svo sem frumvarp til laga um réttarvernd fatlaðs fólks, heildarendurskoðun barnaverndarlaga og frumvarp til laga um öryggisráðstafanir samkvæmt dómsúrlausn.
Þá er vikið stuttlega að húsnæðisöryggi fatlaðs fólks. Meiri hluti nefndarinnar telur brýnt að taka fram að samkvæmt landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024–2027 kemur fram um aðgerð C-3, húsnæði við hæfi, að skipaður verði starfshópur sem falið verði að leggja fram kostnaðar- og ábatagreindar tillögur að úrbótum varðandi húsnæðisöryggi fatlaðs fólks. Samkvæmt tímaáætlun áætlunarinnar er skipan starfshópsins fyrirhuguð árið 2025 og er á ábyrgð félags- og húsnæðismálaráðuneytisins. Meiri hlutinn hvetur ráðuneytið til þess að skipa fulltrúa í starfshópinn svo fljótt sem verða má. Mikilvægt er að kortleggja hvernig tryggja megi húsnæði við hæfi fyrir fatlað fólk á Íslandi. Bindur meiri hlutinn vonir við að starfshópurinn skili vel ígrunduðum tillögum sem leiði til farsællar uppbyggingar á húsnæði fyrir fatlað fólk til samræmis við ákvæði 9. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Breytingar. Ekki hafði verið tekið tillit til breytingartillagna meiri hluta velferðarnefndar í fyrrnefndu nefndaráliti frá 156. löggjafarþingi og leggur meiri hlutinn því aftur til sömu tæknilegu breytingar og þá. Að lokum leggur meiri hlutinn til fáeinar breytingartillögur til viðbótar sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif á frumvarpið.
Að framansögðu virtu leggur meiri hluti velferðarnefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir. Undir nefndarálit meiri hluta nefndarinnar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Grímur Grímsson, Jónína Björk Óskarsdóttir, Kristján Þórður Snæbjarnarson og Sigurþóra Steinunn Bergsdóttur.
Þá hef ég lokið við að lesa helstu atriði nefndarálitsins og vil kannski svona að lokum endurtaka það sem sagt hefur verið, að með þessu frumvarpi er lagt til að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verði lögfestur í heild sinni. Samningurinn, svona aðeins til upprifjunar, sem samþykktur var á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 13. desember 2006, var undirritaður fyrir Íslands hönd hinn 30. mars 2007, fullgiltur hinn 23. september 2016 og allt fram til þessa dags hefur í rauninni staðið til að lögfesta samninginn. Sá hópur sem hér um ræðir er búinn að bíða eftir þeirri stund.
Aðeins til frekari upprifjunar: Með fullgildingunni 2016 skuldbatt íslenska ríkið sig gagnvart öðrum aðildarríkjum til að uppfylla skyldur gagnvart fólki með fötlun og tryggja þau réttindi sem kveðið er á um í samningnum og með löggildingu hér á landi er leitast við að auka réttaráhrif samningsins og styrkja mannréttindi fatlaðs fólks á Íslandi. Hér er sannarlega um stórt skref að ræða og hjálplegt skref við að þrýsta þessum málum áfram til betri og sanngjarnari vegar. Verið er að innleiða ekki síst hugmyndafræði um að fólk með fötlun er hluti af samfélaginu og á að horfa á þeirra mál eins og annarra hópa. Með því að veita samningnum lagagildi er leitast við að auka réttaráhrif samningsins og styrkja mannréttindi fatlaðs fólks.
Ég held að ég láti þetta duga í bili og reikna með áframhaldandi umræðu um málið. Það hefur reyndar verið býsna vel rætt, var auðvitað á síðasta þingi og er aftur núna, en það er bara mjög gott að þetta fái góða umræðu og vonast ég til að þetta sé eitt af þeim málum sem við getum flest tekið höndum saman um, enda í, held ég, þágu okkar allra og samfélagsins alls.