157. löggjafarþing — 28. fundur,  5. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[16:02]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir hennar andsvar. Við höfum sannarlega átt þetta samtal og umræðu áður og það oft. Það er mat ríkisstjórnarinnar sem stendur að baki þessu frumvarpi að hér sé vissulega um ákveðið langhlaup að ræða og það er ekki verið að leggja aukaskyldur á sveitarfélög. Sveitarfélög hafa nú þegar hafist handa og það fyrir lifandis löngu, allt frá því að þetta ferli hófst. Áfram er haldið og eins og fram kom í nefndarálitinu þá er búið að leggja góð drög að frekari vinnu. Ég nefndi stýrihópinn og landsáætlunina þannig að þetta er sannarlega eitthvað sem verður haldið áfram með af krafti. Ég tel að með lögfestingunni sé það enn þá frekar hvatning og þrýstingur fyrir okkur öll að láta þessi mál ganga hratt og vel.