samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Það er rétt að það er langur biðlisti eftir húsnæði fyrir fatlað fólk. Það er búið held ég að telja saman 400 manns og þessi biðlisti hefur alltaf verið gríðarlega erfiður. Það sem er þó jákvætt í því er að sveitarfélagið Reykjavík er núna með endurskoðaða áætlun en því miður gengur allt of hægt að drífa af húsnæði. Það er svo sem bara eins og með margt annað á húsnæðismarkaðnum sem hefur verið vandamál lengi. Það er búið að reikna út hvað það myndi kosta að byggja fyrir allan þennan hóp og HLH-hópurinn hefur gert það nú þegar. Það sem bíður okkar núna þegar áfram heldur er auðvitað að þessi stýrihópur geti virkilega tekið á þessum málum. Þetta mun taka tíma og það er mikilvægt að fara að setja áætlanir í gang en hvenær þessu verður síðan lokið, hvort sem það er fyrir þennan hóp eða aðra hópa í samfélaginu, er kannski ekki gott að segja.
Varðandi réttaráhrif dóma þá hefur það líka komið fram að það er mjög erfitt að áætla kostnað hvað það varðar. Það er svolítið rennt blint í sjóinn með það. Það þarf að koma betur í ljós. Það á vissulega eftir að lögfesta hina valfrjálsu bókun sem vonandi kemur fljótt (Forseti hringir.) en þetta eru hlutir sem eru ekki gerðir á einni nóttu. En þessi samningur og lögfesting hans mun virkilega styrkja og hjálpa til og vera hvatning fyrir okkur öll (Forseti hringir.) að gera betur og hraðar í þessu máli.
(Forseti (BHar): Forseti ítrekar að ræðutíminn er ein mínúta í þessari andsvaralotu.)