samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir framsöguna hér áðan og fagna því mjög að við séum að ræða um þennan mikilvæga samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Hann er gríðarlega mikilvægur. Mér finnst vera mikilvægt þegar við erum að lögfesta slíka samninga að við pössum upp á að það sé fjármagn á bak við þá þannig að réttindin séu ekki bara orð á blaði heldur sé tryggt í framkvæmdinni að ríkisvaldið beri þá ábyrgð að tryggja að nægilega mikið fjármagn sé til staðar til að uppfylla það sem við erum að lögfesta. Ég get því verið á svipuðum nótum og aðrir hér áður: Telur hv. þingmaður ekki þörf á því að passa upp á að við þekkjum kostnaðinn, einmitt til þess að hægt sé að tryggja að það sé settur peningur í verkefni þannig að það sé 100% þegar við tökum ákvörðun um að lögfesta slíkan samning, sem við verðum að gera, að við séum að setja pening í málið til að tryggja að framkvæmdinni sé fullnægt.