157. löggjafarþing — 28. fundur,  5. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[16:15]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar og vil endurtaka það að ég hef ekki áhyggjur, ekki núna. Ef ég sæi fram á að hlutirnir væru að fara á slæman veg, ef eitthvað myndi gerast þannig að ekki væri tekin ábyrgð á þessari aðgerð eins og hv. þingmaður kemur inn á, ef ekki væri nægilegt eftirlit og við værum ekki nægilega vakandi, þá myndi ég sannarlega hafa áhyggjur og bregðast við.

Hér erum við að hefja tiltölulega nýtt kjörtímabil þessarar ríkisstjórnar sem ég hef mikla trú á að beri ekki bara ábyrgð á þessu máli heldur á öllum málum sem hún leggur fram. Nú þegar er búið að setja af stað ákveðnar aðgerðir sem á að fara í sem ég hef þegar nefnt og eru nefndar í nefndarálitinu. Ég vona að ég beri gæfu til og mér endist ævi til að vera hér áfram og fylgja þeim eftir. Þetta er mitt hjartans mál eins og svo margra. Það er ekki að ástæðulausu að maður gleðst í dag því að hér er stór hópur sem hefur beðið lengi, árum saman, (Forseti hringir.) líka að fagna og vonast til þess að þetta gangi vel í gegn með samstöðu okkar allra.