157. löggjafarþing — 28. fundur,  5. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[16:17]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það vantar ekki stuðning í þennan þingsal við þetta frumvarp, jafnvel frá þeim sem eru með sérstakt nefndarálit sem leggst gegn frumvarpinu; þeir lýsa samt yfir stuðningi við frumvarpið. Þetta er þannig mál, málefni fatlaðra, að það vilja auðvitað allir allt fyrir alla gera. Það er skiljanlegt en menn þurfa í stjórnmálum, og löggjafinn sérstaklega, að vera raunsæir og skapa ekki væntingar umfram tilefni. Það er það sem ég hef kannski áhyggjur af að verið sé að gera með þessu frumvarpi. Þess vegna myndi ég vilja fá að vita afstöðu hv. framsögumanns nefndarálits á réttaráhrifum þess að lögfesta þennan samning. Telur hv. þingmaður að lögfestingin kalli á auknar aðgerðir, svo sem þróun einhverra þjónustuúrræða eða einhvers konar ný efnisréttindi til handa fötluðum?