samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir hennar andsvar. Það gæti vel gerst. Ég er hvorki miðill né spákona en ég treysti því að ef það koma í ljós nýjar þjónustukröfur eða -þarfir eða hvaðeina — það gæti vel verið, það er bara eins og með aðra hópa í samfélaginu — þá munum við bregðast við því í stað þess að stinga höfðinu í sandinn, að við munum taka á því. En það er ekkert gott að fullyrða um það. Enginn getur staðið hér og sagt: Nei, það mun ekki verða nein þróun. Þróun er þróun og það getur allt mögulegt komið upp. Ég verð því eiginlega bara að svara þessari spurningu á þann veg að allt mögulegt geti komið manni á óvart í framtíðinni. Ég veit hins vegar að ríkisstjórnarflokkarnir eru fullkomlega sammála og sáttir við að stíga þetta skref og munu taka á framhaldinu af ábyrgð.