samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Virðulegur forseti. Já, ríkisstjórnin virðist vera samhent og sammála um að þetta mál fari í gegn eins og hv. þingmaður sagði. Getur verið að ástæðan fyrir því sé sú að menn hafa ekki hugmynd um hver réttaráhrif lögfestingar þingmála eru? Hv. framsögumaður málsins lýsir því hér yfir að hún hafi ekki hugmynd um hvort lögfestingin hafi einhver efnisréttindi eða auknar aðgerðir í för með sér. Frumvarpshöfundar voru ekki í neinum vafa. Það er kveðið skýrt á um það í frumvarpinu að lögfestingin kalli ekki á auknar aðgerðir, svo sem þróun þjónustuúrræða, og að lögfestingin feli ekki í sér ný efnisréttindi. Hvernig telur hv. þingmaður og framsögumaður nefndarálitsins það standast þinglega meðferð og skuldbindingar gagnvart skattgreiðendum og fötluðu fólki að afgreiða svona mál án þess að nokkur viti nokkuð í sinn haus um hvaða afleiðingar það hafi en sendi röng skilaboð og mögulega villi um fyrir fötluðu fólki að þessi samningur og lögfesting samningsins hafi einhver efnisréttindi í för með sér?