157. löggjafarþing — 28. fundur,  5. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[16:29]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu þótt ég verði nú að lýsa yfir miklum vonbrigðum með innihald ræðunnar. Það er ekki í nokkru samræmi við yfirlýsta stefnu Framsóknarflokksins og ekki samþykktir flokksins frá því 21. apríl 2024. Þá er bara einfaldlega sagt að flokkurinn styðji þetta mál og styðji lögfestinguna, það er enginn fyrirvari. En nú er komið hér fram, þegar fulltrúi flokksins ætti miklu frekar að fagna, í stað þess að vera með ræðu sem er nánast smásálarleg, ég vil nú varla taka mér það orð í munn. Það er verið að telja það eftir að það eigi að staðfesta samning sem á að tryggja jafnrétti fatlaðra og banna misnotkun. Í ræðunni kom fram að þetta gæti stuðlað að því að það væri farið í mikinn kostnað vegna aðgengismála.

Áður en lengra er haldið er ágætt að rifja upp að það er falinn auður í fötluðu fólki. Ýmsar aðgerðir sem þessi lögfesting felur í sér eða hefur í för með sér, frú forseti, þ.e. að fatlaðir geti notið sín betur, geta skapað auð og jafnvel að aðstandendur geti haft frjálsari hendur. Þetta kemur á óvart og ég bið ekki aðeins hv. þingmann að endurskoða afstöðu sína og þennan fyrirvara sem hér kemur fram, heldur þingflokkinn í heild sinni.