157. löggjafarþing — 28. fundur,  5. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[16:32]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég tek undir það að það mættu fleiri þekkja stefnu Framsóknarflokksins og samþykktina sem var gerð 21. apríl. Þá á ég við þá þingmenn sem sitja hér á hinu háa Alþingi því að þeir ættu auðvitað að hafa það sem fyrirmynd. En að öðru leyti höfum við haft hátt í tvo áratugi til að ganga frá þessu máli og meta þann kostnað sem mögulega fylgir því. En það er ekki hægt að horfa fram hjá því að mat á áhrifum frumvarpsins kemur einfaldlega fram á 32. bls. þess. Að tala hér út og suður um að þetta sé eitthvað ófyrirséð og menn hafi ekkert velt þessu fyrir sér og að þetta mál sé illa undirbúið — það er ekki hægt að gera það, það finnst mér ekki sanngjarnt. Við höfum fjallað vel um þetta mál í þingnefndum og það hafa komið fram umsagnir og eins og lög gera ráð fyrir er mat á áhrifunum. Ég vona svo sannarlega að ef málið fer til nefndar á milli 2. og 3. umræðu endurskoði þingflokkur Framsóknarflokksins afstöðu sína til málsins í heild, geri málið einfaldlega að sínu og verði jákvæður í garð fatlaðra í stað þess að sjá hér kostnað og fyrirstöðu í því að tryggja mannréttindi fatlaðra.