samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið eða þetta leikrit sem verið er að setja hér upp og setja það fram að við í Framsókn séum á móti réttindabaráttu fatlaðs fólks. Það er kolrangt. Við styðjum málið, við styðjum markmið málsins og ég hvet hv. þingmann til að hlusta þegar hér er verið að ræða hlutina. Það sem við erum að fara fram á er að það verði kostnaðarmat á málinu til þess að við getum samþykkt það; að fjármunir fylgi til sveitarfélaga svo þau geti uppfyllt það sem verið er að lögfesta hér. Hér er verið að taka íþyngjandi ákvörðun gagnvart sveitarfélögum vitandi það, sjáandi fram á það, að heildarviðbótarkostnaður við núverandi þjónustu og markmið frumvarpsins er metinn á 14 milljarða kr. á ári. Þetta liggur ljóst fyrir. En það þarf ekkert kostnaðarmat frá hendi hæstv. ríkisstjórnar eða hv. meiri hluta velferðarnefndar. Það eiga allir að samþykkja þetta brot á sveitarstjórnarlögum varðandi það að það eigi að framkvæma kostnaðarmat þegar kemur að lögfestingu svona máls. Ég vísa þessu því til föðurhúsanna og ég tel að það sé afar óábyrgt að samþykkja hér mál sem við vitum ekki hvaða kostnað hefur í för með sér. Það er neitað að greina það og ég vona að hv. velferðarnefnd skoði þetta þegar málinu verður vísað til hennar milli 2. og 3. umræðu og kalli eftir þessu mati til þess einmitt að við getum af ábyrgð öll tekið okkur saman um að tryggja réttindi fatlaðs fólks. Því ef það fylgja ekki fjármunir þá er tómt mál að tala um þessa lögfestingu.