samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni fyrir andsvarið. Öllum getur okkur orðið á og hér koma mál frá ríkisstjórninni trekk í trekk sem kannski eru ekki alveg hugsuð til enda. Þess vegna er þinglega meðferðin svo mikilvæg. Nú er þetta mál komið á borð hv. velferðarnefndar og þar fáum við umsagnir og skýrslur og töluleg gögn sem sýna bersýnilega fram á hið gagnstæða. Einmitt, það eru fjárhagslegar skuldbindingar og áhrif af þessu mati. Þá myndi ég telja að það væri skynsamlegt að bakka tvö skref og segja: Allt í lagi, hér eru komin gögn og greiningar sem sýna fram á hið gagnstæða við það sem stendur í frumvarpinu. Skoðum þetta betur. Sýnum ábyrgð og vandaða lagasetningu. Köllum þá eftir þessu kostnaðarmati og sjáum hver áhrifin eru. Ef þau eru í rauninni veruleg gagnvart sveitarfélögunum þá er hægt að mæta því með fjármagni til sveitarfélaga í stað þess að loka augunum vitandi það að þetta mun hafa kostnað í för með sér og ætla að samþykkja það og gagnrýna aðra fyrir að benda á hið augljósa. Þannig að ég tel afar mikilvægt líka að við hér á Alþingi, sem setjum lög, förum líka eftir þeim sjálf.