samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni fyrir ágæta ræðu. Ég bjóst við því fyrir fram að það yrði svona mýkri vinkill hjá Sjálfstæðisflokknum, að hv. þingmaður tæki við þeim félagslegu þráðum sem þar voru að finna, m.a. má nefna hjá heiðursmanninum Ásmundi Friðrikssyni, Katrínu Fjeldsted og fleira góðu fólki. En því miður virðist það ekki vera því að hann flytur hér sykurmjúka ræðu um að hann sé sammála málinu og hann vilji framgang þess og allt það en setur fyrir sig kostnaðarmatið. Auðvitað liggur það fyrir að þegar menn eru að tryggja mannréttindi sem mögulega geta haft áhrif á dómsmál þá ætti hann að vita það betur en margir aðrir hér í þessum þingsal hvernig mál geta lent. Það er ekkert hægt að fara frá því að við erum hér að lögfesta mannréttindi og tryggja réttindi fatlaðra á við aðra. Þetta er mál sem ég hefði talið að flestir þingmenn sem væru kjörnir hér á hinu háa Alþingi gætu stutt en væru ekki að fara fram á nákvæmar greiningar sem hv. þingmaður ætti að vita betur en aðrir að er mjög erfitt að fara nákvæmlega ofan í. Það væri því ágætt að fá fram hjá hv. þingmanni: Hvað telur hann að sé ásættanlegur kostnaður til þess að tryggja hér mannréttindi fatlaðra? Er það 1 milljón, 10 milljónir, 100 milljónir? Það væri gott að fá eitthvert viðmið hjá hv. þingmanni Sjálfstæðisflokksins hvað það varðar.