157. löggjafarþing — 28. fundur,  5. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[17:07]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka fyrir andsvarið. Hv. þingmaður talar um að við verðum að vanda okkur, ég er alveg sammála því, en við getum samt ekki dregið það út í óendanleikann að lögfesta þennan samning sem ég heyri ekki annað á honum en að sé mikilvægur, tryggi mannréttindi, jafnræði og grunnþarfir eins og húsnæði. Við erum búin að hafa tíma frá árinu 2007 og nú er víst kominn nóvember 2025, þannig að ég tel ekki eftir miklu að bíða, sérstaklega í ljósi þess að við höfum unnið ýmis verk sem hafa verið studd hér af öllum flokkum og grundvallast á þessum samningi. Þess vegna finnst mér að við ættum bara að sýna samtakamátt og sameinast um að lögfesta þetta. Við erum komin nokkuð langt með (Forseti hringir.) þennan málaflokk og ættum ekki að setja fyrir okkur svona tækniatriði sem ég tel að menn séu að ýkja talsvert, (Forseti hringir.) sérstaklega má sjá það í umsögnum um þetta mál. Þetta er jákvætt mál og mér fyndist jákvæðara að við gætum staðið hér saman.