157. löggjafarþing — 28. fundur,  5. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[17:10]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni fyrir yfirferðina á nefndaráliti sínu hér áðan. Við erum að ræða mál sem snertir réttindi fatlaðs fólks, lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem er gríðarlega mikilvægt skref fyrir fatlað fólk hér á landi og þau réttindi sem það á sannarlega rétt á í okkar samfélagi. Ég velti því fyrir mér varðandi þessa stöðu, af því að nú er þetta mál ekkert alveg nýtt af nálinni; fyrri ríkisstjórn vann að því, ef mér skjátlast ekki, að lögfesta samninginn, setti slíkt mál í samráðsgátt og vann með það. Ég er svona að velta fyrir mér, maður veit svo sem ekkert af hverju ekki gafst tími til að klára það mál, en mikilvægt er það og nú er það komið hingað. Það er talað um kostnað sem hljótist af þessu. Það er búið að innleiða samninginn en ekki búið að lögfesta hann. Mig langaði svolítið að fá fram frá þingmanninum hvar hann telur að lögfestingin muni auka kostnað, hvort hún muni auka kostnað einhvers ákveðins þáttar sérstaklega sem ekki er tekið á hérna og þá hvaða réttindi það eru sem fólk er ekki að njóta.