157. löggjafarþing — 28. fundur,  5. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[17:18]
Horfa

Elín Íris Fanndal (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni kærlega fyrir framsöguna. Hann talar hér um að vanda sig við allan undirbúning þessa samnings. Ég vil vekja athygli hans og annarra þingmanna á að flokkur hans var í stjórn í 12 ár af þeim 18 sem liðið hafa frá því að samningurinn um réttindi fatlaðs fólks var fyrst kynntur hér á Alþingi. Spurning mín til þingmannsins er því einföld. Hún er þessi: Hversu langan tíma telur hann réttlætanlegan til viðbótar?