157. löggjafarþing — 28. fundur,  5. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[17:20]
Horfa

Elín Íris Fanndal (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er athyglisvert að heyra hv. þingmann finna þessu löngu tímabæra framtaki ríkisstjórnarinnar margt til foráttu, alls ekki allt en margt. Nú eiga geðfatlaðir sérstaklega erfitt innan heilbrigðiskerfisins. Það þekkir þingmaðurinn sem stendur hér mætavel, hafandi unnið í þjónustukjarna þar sem einstaklingar með geðræna fötlun eiga athvarf. Er hv. þingmaður sammála mér um að sá hópur og fatlaðir allir hafi beðið eftir samþykki Alþingis í 18 ár og að það sé í raun og veru verið að brjóta enn frekar á mannréttindum þeirra með lengri bið?