samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Virðulegur forseti. Ég ætla í sjálfu sér ekki að hafa mörg orð um þetta mál hérna við 2. umræðu. Ég flutti ræðu við 1. umræðu og framlagningu þessa máls og hef tekið þátt í umræðum um málið í hv. velferðarnefnd og sjónarmið sem ég lagði fram við 1. umræðu þessa máls hafa nú bara styrkst, að mínu mati, eftir umfjöllun í hv. velferðarnefnd, gestakomur og almenna umræðu þar um þetta mál.
Það sem stendur helst í mér, kannski eins og mörgum öðrum sem hafa tekið til máls í þessu máli, eru í rauninni þau skilaboð sem verið er að senda út með lögfestingu alþjóðasamnings eins og þessa samnings, sem er svona almennt orðaður. Það er sérstaklega tekið fram í greinargerð með frumvarpinu, að lögfestingin eigi ekki að kalla á auknar aðgerðir í þágu fatlaðs fólks, svo sem einhver aukin þjónustuúrræði eða þróun þeirra, og að lögfestingin sem slík feli ekki í sér nein ný efnisréttindi. Þetta kemur skýrt fram í greinargerð með frumvarpinu. Allt að einu, við þinglega meðferð málsins og umræðu í hv. velferðarnefnd, hafa ummæli ýmissa vakið upp efasemdir um að menn leggi allir sama skilning í þetta fyrirbæri sem fer fram á Alþingi með lögfestingu á svona samningi. Það hefur komið fram t.d. í framsögu hv. þingmanns og formanns velferðarnefndar, framsögumanns málsins, að hún geti ekkert fullyrt um hvernig dómstólar muni líta til lögfestingar þessa samnings, þ.e. hvaða réttaráhrif samningurinn myndi hafa fyrir dómi. Þetta í sjálfu sér kemur líka fram í greinargerð með frumvarpinu. Mér finnst þetta varhugaverð nálgun ef löggjafinn ætlar að gera þessa nálgun að sinni, ákaflega varhugaverð nálgun á lagasetningu í landinu. Því er varpað fram með þessu að það sé hreinlega bara hlutverk dómstóla að finna út úr því hvaða réttindi fatlað fólk eigi að hafa hér á landi og jafnvel búa til einhver ný réttindi, segja til um hvað samningurinn felur í sér, hvaða réttaráhrif samningurinn hefur í för með sér um einstök réttindi sem fatlaðir kalla eftir eða hafa, þá á ég við kannski einstök þjónustuúrræði gagnvart fötluðu fólki, að það verði bara látið í hendur dómstóla. Dómstólar eru ekki að kalla eftir þessu verkefni. Það er ekki hlutverk dómstóla að skapa einhver réttindi fyrir borgarana í landinu. Dómstólar skera úr um ágreining en setja ekki nýjar reglur. Dómstólum er kannski vandi á höndum þegar reglurnar eru svo ofboðslega óljósar að einhvern veginn þarf að skera úr um hvað þær þýði. Þá þarf löggjafinn að bregðast við, sé það alveg út úr öllu korti, það sé niðurstaða dómstóla. En það er stundum samt hægara sagt en gert, sérstaklega í málum sem varða einhver svona réttindi. Þess vegna er mjög brýnt við lagasetningu frá Alþingi, alla lagasetningu, að löggjafinn geri eins og hann geti til þess að átta sig á einhverjum sviðsmyndum og áhrifum lagasetningar. Það vantar í þessu máli.
Það er þó ekki þannig að það hafi ekkert verið gert í þessum málaflokki. Í 20 ár frá undirritun þessa samnings hefur löggjafinn einmitt verið að taka til í lagasafninu, í löggjöf, og búa til nýja löggjöf sem ætlað er einmitt að mæta þeim réttindum sem kveðið er á um í þessum samningi. Ég vil samt taka það fram að flest af þessum réttindum sem samningur Sameinuðu þjóðanna kveður á um eru ekki fundin út hjá Sameinuðu þjóðunum. Þetta eru réttindi sem fatlað fólk eins og aðrir hafa lögum samkvæmt og einkum og sér í lagi með vísan til stjórnarskrárinnar án tillits til þess hvað Sameinuðu þjóðirnar segja eða einhver alþjóðlegur samningur segir. Menn mega ekki rugla þessu saman, menn mega ekki halda að það sé verið að búa til þessi réttindi í útlöndum og færa þau hingað. Íslensk löggjöf og stjórnarskrá Íslands hefur frá öndverðu gert ráð fyrir mannréttindum allra, fatlaðs fólks á við aðra. Þjónusta við fatlað fólk hins vegar, alveg eins og þjónusta við foreldra, þjónusta við börn, tekur breytingum í áranna rás, allt eftir efni og aðstæðum. Hlutverk löggjafans er að búa til ramma og reglur um þessa þjónustu.
Menn kann samt að greina á þegar sagt er að allir eigi t.d. rétt til heilnæms umhverfis eða allir eigi rétt til lífs. Hvað þýðir það? Þýðir það að menn geti krafist þess t.d. á spítölum að það sé gert allt til þess að bjarga lífi, að það sé öllu til kostað til að bjarga einu tilteknu lífi? Nei, það er ekki þannig. Það kann að hljóma kannski harðneskjulega en það er ekki þannig. Allt þetta þarf að meta eftir efnum og aðstæðum og raunveruleika í hverju tilviki fyrir sig.
Í áratugi hafa íslensk stjórnvöld og löggjafinn verið að auka við þjónustu við fatlað fólk og gert það mynduglega á mörgum sviðum en kannski á sumum sviðum ekki algerlega með jafnræði að leiðarljósi. Þannig er háttað með ýmsa þjónustu sem fötluðum er veitt með löggjöf í dag að sumir fatlaðir fá mjög mikla þjónustu á meðan aðrir fatlaðir fá kannski enga slíka þjónustu af því að það er ekki til fjármagn. Lögfesting á samningi sem þessum mun ekki breyta þessu og getur ekki breytt þessu. Þjónusta við fatlaða eins og alla aðra í landinu; börn, foreldra, eldri borgara, er auðvitað háð þeim takmörkunum sem fjárveitingavaldið setur á hverjum tíma. Það er kannski þess vegna sem frumvarpshöfundum er mjög annt um að það komi fram í greinargerðinni að lögfestingin kalli ekki á auknar aðgerðir eða feli í sér ný efnisréttindi. Þetta sjónarmið er þarna sett fram í greinargerð því að frumvarpshöfundar vilja ekki að það verði upp á þá klagað í framtíðinni að þeir hafi með þessu verið að kalla á einhver aukin ríkisútgjöld, enda verða ríkisútgjöld ekki aukin nema með aðkomu Alþingis á hverjum tíma, einu sinni á ári.
Það er hins vegar þannig að löggjafinn hefur verið að samþykkja á undanförnum árum ýmsa löggjöf um efnisleg réttindi til handa fötluðum án þess að gert sé ráð fyrir því í fjárlögum. Það hefur skapað að mínu mati alveg óviðunandi aðstæður fyrir fatlaða, bæði hvað varðar jafnræði og síðan hafa í rauninni, að mínu mati, fatlaðir stundum verið blekktir til að halda að löggjöf sem hefur verið samþykkt hér sé að fela þeim í raun einhver aukin réttindi eða aukna þjónustu þegar það hefur síðan ekki verið hægt að standa við það. Þá finnst mér a.m.k. betur heima setið en af stað farið. Ég tel að það þurfi að vinna að auknum réttindum og aukinni þjónustu fatlaðra í samræmi við getu á hverjum tíma og með það í huga að létta álaginu af fötluðum sem víðast. Svo geta menn haft sjónarmið um það, það er í sjálfu sér ekki inntak mitt, hvar pottur er brotinn í þessu. En það liggur alveg fyrir að það er pottur brotinn í þessu. Það eru mörg mál er varða fatlaða og aukna þjónustu við fatlaða í dag sem brýnt er að ráðast í og mér finnst í rauninni með svolitlum ólíkindum að menn leggi svona mikla áherslu á að lögfesta þennan samning en virðast ekki vera að vinna í neinu að öðrum málum sem eru mjög brýn. Ég tek sem dæmi möguleika fatlaðra, andlega fatlaðra, á rafrænum skilríkjum. Þetta er bara svona lítið praktískt atriði sem háir fötluðu fólki og aðstandendum þess og hefur háð þessu fólki í mörg ár. Í stað þess að reyna að finna lausn á því — þetta er verkefni fyrir þingið og ríkisstjórnina, eða viðkomandi ráðherra, að leggja fram á þinginu þær lagabreytingar sem þarf af því að það hljómar eins og þarna þurfi einhverjar lagabreytingar til að auðvelda fötluðum aðgengi að rafrænum skilríkjum. Þetta er verkefni sem er einhvern veginn látið danka en öll áherslan lögð á það að lögfesta þennan samning sem mun í engu breyta aðstæðum fatlaðs fólks hvað þetta varðar. Það mun ekki breyta neinu.
Hér hefur verið nefndur samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins sem var samþykktur hér fyrir mörgum árum og þingmenn hafa furðað sig á því af hverju menn geti ekki litið á þetta mál nákvæmlega eins og það var gert á þeim tíma. Þá er ágætt að rifja upp hvernig það var einmitt gert. Það er rétt að hafa það í huga að það er kannski ólíku saman að jafna, réttindum barna og samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barna sem er mjög almenns eðlis, og kveður á um réttindi sem er meira að segja kveðið á um í stjórnarskrá Íslands og mjög auðvelt að uppfylla. Og auðvitað uppfylltu Íslendingar öll þessi réttindi áður en samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins var undirritaður, en allt að einu var í aðdraganda lögfestingar þess samnings farið í mjög mikla vinnu við það að greina einmitt alla löggjöf sem varðar börn, alla löggjöf, og það tók mörg ár. Í frumvarpi með samningnum sem var lögfestur er mjög góð yfirferð yfir það hvernig var farið yfir íslensk lög og aðlögun íslenskra laga að samningnum. Það var lokið við þá aðlögun áður en samningurinn sjálfur var lögfestur. Það er í sjálfu sér að miklu leyti til fyrirmyndar hvernig var farið yfir það og þetta eru þau vinnubrögð sem ég veit að stjórnvöld hingað til hafa reynt að viðhafa þegar kemur að þessum samningi um réttindi fatlaðs fólks. Menn eru komnir mjög langt í því en það er ljóst að víða er pottur brotinn og núna er þrýstingurinn á að þetta sé lögfest, maður heyrir það bara, þrýstingurinn er þannig að menn halda að það hrökkvi allt í gírinn með lögfestingunni einni saman. Mér finnst mikilvægt að það komi fram af hálfu löggjafans að það er ekki þannig. Þannig auka menn ekki við réttindi einstaklinganna.
Að lokum langar mig líka að nefna valfrjálsu bókunina en spurt hefur verið um af hverju hún sé ekki með í þessu. Ég vil bara fagna því, það er þó eitthvað rétt sem þessi ríkisstjórn gerir eða hæstv. ráðherra, sem leggur fram þetta frumvarp, að hafa ekki þessa valfrjálsu bókun með. Þótt ég haldi að það verði nú ekki heimsendir þó að þessi samningur verði lögfestur á þessu stigi, þá tel ég algjörlega útilokað að löggjafinn lögfesti valfrjálsa bókun við samning Sameinuðu þjóðanna eins og þessi valfrjálsa bókun er, sem er nú einn stór blekkingaleikur gagnvart fötluðu fólki, hún kveður á um heimildir fatlaðs fólks til að skjóta ágreiningi við íslensk stjórnvöld til nefndar Sameinuðu þjóðanna einhvers staðar í útlöndum og fá þar úrskurð einhverrar nefndar Sameinuðu þjóðanna, sem enginn veit hver situr í, um hvernig eigi að leysa úr þessum ágreiningi. Svo koma menn auðvitað til Íslands með einhverja niðurstöðu og segja: Heyrðu, nefnd Sameinuðu þjóðanna segir að ég eigi þennan rétt, ég eigi rétt á, ja, ég veit ekki hverju, fljúgandi bíl eða einhverju slíku, og leggur það fram fyrir íslensk stjórnvöld. Þetta var rætt í velferðarnefnd og sem betur fer voru talsmenn og gestir sem komu af hálfu samtaka fatlaðra, einhverra samtakanna, sem áttuðu sig auðvitað á því og sögðu: Nei, nei, við áttum okkur auðvitað á því að þetta er bara til leiðbeiningar. Auðvitað vitum við að íslensk stjórnvöld geta ekki kokgleypt hrátt eða verið bundin niðurstöðu nefndar í útlöndum, þótt sú nefnd sé á vegum Sameinuðu þjóðanna. Auðvitað vitum við að þetta er nú bara svona til leiðbeiningar og íslensk stjórnvöld eiga bara að fagna því að fá leiðbeiningar frá nefndinni, en þetta er auðvitað ekki bindandi.
Virðulegur forseti. Ég óttast að spyrji menn fatlað fólk og ófatlað líka um hvaða réttaráhrif það telji að þessi valfrjálsa bókun hafi, þá held ég að meiri hlutinn myndi segja: Já, að sjálfsögðu er verið að veita fötluðum einhver réttaráhrif með niðurstöðum í þessum nefndum. En það er auðvitað ekki þannig. Við höfum dæmi, ég get rifjað upp gömul mál um einhverja nefnd Sameinuðu þjóðanna um sjávarútvegsmál sem komst að því einhvern tíma fyrir mörgum árum að kvótakerfið væri bara mannréttindabrot. Það voru einhverjir Íslendingar sem veifuðu þessu plaggi hér og ætluðu að ná fram rétti sínum með þessa niðurstöðu einhverra spekinga í nefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna, einhverra spekinga frá löndum sem ég kann nú ekki einu sinni að nefna, einhverra spekinga sem töldu sig þekkja íslenska stjórnarskrá, íslensk mannréttindi og íslenska sjávarútvegskerfið betur en íslenskir dómstólar. En gott og vel. Þetta nefni ég um þessa valfrjálsu bókun. Ég fagna því þó að þetta mál feli ekki í sér lögfestingu á valfrjálsu bókuninni. Ég tel, nái þetta mál fram að ganga, útilokað að löggjafinn samþykki valfrjálsu bókunina og mér finnst heiðarlegt að það sé bara sagt hér þannig að það sé ekki verið að skapa væntingar um að menn geti unnið í útlöndum, eitthvað sem þeir mögulega munu í framtíðinni tapa í Hæstarétti á Íslandi. Það er því miður orðinn plagsiður að þeir eru alltaf verða alltaf fleiri og fleiri hér á landi sem telja að Hæstiréttur Íslands sé ekki lengur æðsti dómstóll landsins. Það sé hægt að sækja allan rétt sinn til útlanda, jafnvel í þessu tilfelli fyrir einhverjum nefndum og telja jafnvel að Hæstiréttur Íslands yrði sjálfkrafa bundinn af niðurstöðu á slíkum nefndarfundum. En það er ekki þannig.
Ég vil bara vera heiðarleg með það að ég tel að verkefni í þágu fatlaðs fólks séu ærin, brýn verkefni sem liggja fyrir, og að stjórnvöld og löggjafinn líka eigi að einhenda sér í að vinna bug á margvíslegum göllum sem eru í löggjöf um þjónustu við fatlað fólk. Að einhverju leyti er hægt að taka undir að það þurfi að veita meira fé í einstaka málaflokka, færa mögulega fé úr einhverjum öðrum málaflokkum, stilla það af á þann hátt að það verði ekki þannig að einhverjir fatlaðir njóti mjög mikillar þjónustu alltaf en aðrir fatlaðir, jafnvel mögulega í nákvæmlega sömu fötlunarstöðu, njóti nánast engrar þjónustu. Ég hefði óskað þess að stjórnvöld legðu meiri áherslu á að vinna þannig að málum, vinna áfram að breytingum á viðeigandi löggjöf, heldur en að leggja þessa áherslu á lögfestingu á þessum samningi, sem ég óttast að geti orðið til þess að menn festist í einhverju dómstóla- og lögfræðistríði, eins og það er kallað, til að ná fram réttindum sínum en vinni ekki málum sínum fylgi hér á þingi. Það er þar sem þarf að vinna þessum málum fylgi. Það er jafnvel ekki óhugsandi og menn getur grunað að stjórnvöld séu að leggja til þetta mál til þess að komast hjá því að vinna að stórum verkefnum sem liggja fyrir.