samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Virðulegur forseti. Sá er kannski helsti gallinn á frumvarpinu að það hefur greinilega ekki farið fram þessi úttekt á því hvaða löggjöf á eftir að reyna að lagfæra og/eða setja til að hægt sé að segja að við fullnægjum þessum samningi. Ég er ekki að segja að það hafi ekki verið gert en þó er það ekki tiltekið með skilmerkilegum hætti í frumvarpinu eða með sambærilegum hætti og gert var í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins. Þá var listað upp í greinargerðinni hvernig var farið skref fyrir skref yfir alla löggjöf sem laut að barninu á þeim tíma. Við fullgildingu barnasamningsins á sínum tíma var meira að segja litið svo á að íslensk löggjöf væri í samræmi við ákvæði hans. Þess vegna var hann fullgiltur án fyrirvara af hálfu Íslands. Síðan er upplýst um það að á þeim 17 árum sem liðu í aðdraganda lögfestingar barnasamningsins hafi átt sér stað þróun innan íslenskrar löggjafar, eins og reyndar víða um heim, í þá átt að bæta réttarstöðu barna, m.a. til að koma enn frekar til móts við fyrirmæli samningsins. Ég sakna þessa. Þessi umfjöllun er mjög ítarleg í barnasamningnum og ég sakna slíkrar umfjöllunar í greinargerð með samningi um málefni fatlaðs fólks.