157. löggjafarþing — 28. fundur,  5. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[17:51]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þrátt fyrir að þetta frumvarp feli ekki í sér jafn skýra lýsingu á aðdraganda frumvarpsins, eins og ég lýsti í fyrra andsvari, og frumvarp um samninginn um réttindi barnsins, þar sem kemur fram í greinargerðinni að frumvarpshöfundi hafi verið falið að fara yfir hverja einustu löggjöf til að upplýsa um hverju þyrfti að breyta og setja jafnvel nýtt, er að vísu fullyrt að þetta frumvarp og lögfestingin feli ekki í sér ný efnisréttindi og kalli ekki á nýja þróun. Gott og vel, það er þá bara mat frumvarpshöfunda. Ég fagna því að það sé afdráttarlaust sagt í þessu frumvarpi. Ég hins vegar heyri, og af því stafa áhyggjur mínar, m.a. hjá framsögumanni nefndarálitsins og hjá hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra, sem leggur málið fram, að þær hafa miklu meiri væntingar til þessarar lögfestingar. Þær hafa ekki haldið til haga þessum ummælum sem eru í greinargerðinni um að þetta feli ekki í sér þróun á úrræðum heldur bendir frumvarpið einmitt réttilega á landsáætlun um málefni fatlaðra þar sem kveðið er á um þróun á þjónustuúrræðum, og er þar líklega samhljóða samningnum. Í landsáætluninni er stefnumörkun en menn geta hvorki byggt sérstakan rétt sinn á henni né þessum samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Mér finnst bara mikilvægt að það liggi fyrir.

Ég fagna ummælum í greinargerðinni um að þetta feli ekki í sér breytingu en ég efast um að mjög margir líti á það þannig miðað við umræðuna sem hefur verið á Alþingi, (Forseti hringir.) hér inni í þingsal og fyrir hv. velferðarnefnd.