157. löggjafarþing — 28. fundur,  5. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[17:53]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S):

Herra forseti. Við ræðum hér í dag frumvarp og ég heyri að það efast enginn um mikilvægi eða tilgang þess. Í grunninn er heildarmarkmiðið að tryggja að fatlað fólk njóti mannréttinda til jafns við aðra, sem er auðvitað hrikalega mikilvægt réttlætismál. Eins og fram hefur komið þá hefur Sjálfstæðisflokkurinn ávallt staðið með þessu markmiði. Við viljum öll að Ísland sé réttarríki sem tryggir jafnræði fyrir alla og það er náttúrlega það sem þetta mál snýst um. En einmitt þess vegna, af því að þetta er jafn mikilvægt mál og það er, er nauðsynlegt að vanda sig. Við erum að tala um að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og maður hefði haldið að það þyrfti að byggja á traustum grunni, með skýrri ábyrgð, það ætti að vera greining og fjármögnun. Því miður verður ekki séð að það sé þannig í þessu frumvarpi.

Ég vil taka skýrt fram að sá sem hér stendur styður að sjálfsögðu megintilgang þessa frumvarps. En það er ýmislegt sem hefur komið á daginn þegar maður hefur verið að lesa sig í gegnum þetta, skoða umsagnir og svo að fylgjast með umræðunni hér í þingsal. Eins og kemur fram í nefndaráliti 2. minni hluta velferðarnefndar, sem hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson fór hérna yfir áðan, þá er undirbúningur þess máls bara alls ekki í samræmi við þá fagmennsku sem við eigum að gera kröfur til þegar Alþingi er að setja lög, hvaða lög sem er og hvað þá lög sem eiga að tryggja mannréttindi, sem er búið að vera hér eiginlega orð dagsins og kvöldsins. Manni líður eins og það liggi afskaplega tæpt að það sé einhver heildstæð greining á því hvaða íslensk lög standa í ósamræmi við samninginn og/eða hvaða breytingar þurfi að gera. Það sem við erum að reyna að gera hérna verður ekki bara gert með einhverjum góðum ásetningi og bara gerist einhvern veginn. Við viljum að þetta gerist, það er ekki spurning um það, en það þarf lagalega vinnu, það þarf kortlagningu á þessu og það þarf skýra aðgerðaáætlun númer eitt, tvö og þrjú og það þarf auðvitað að vita hvort þetta sé hreinlega hægt og á hverjum síðan kostnaðurinn lendir í þessu.

Það er einmitt hvað varðar fjárhagsleg áhrif frumvarpsins sem hnífurinn stendur svo sannarlega í kúnni, alla vega í þessum þingsal í kvöld. Samkvæmt 129. gr. sveitarstjórnarlaga ber að leggja fram mat á áhrifum frumvarpa á fjárhag sveitarfélaga áður en þau eru lögfest eins og hefur margsinnis komið fram í umræðunni í kvöld. Það hefur ekki verið gert í þessu tilviki en eins og allir vita eru það sveitarfélögin sem á endanum bera meginábyrgð á þjónustu við fatlað fólk. Mér finnst að við getum ekki, í þessu eina og sama skrefi, verið að boða aukin réttindi eða skyldur í þjónustu án þess að vera með trygga fjármögnun. Samband íslenskra sveitarfélaga hefur bent á að lögfesting án kostnaðarmats geti fært verulegan fjárhagslegan vanda yfir á sveitarfélögin og hefur þar verið talað um 14–18 milljarða kr.

Það er einmitt um þennan fjármagnshluta sem umræðurnar hafa verið ansi áhugaverðar, þá kannski sér í lagi, hann er nú farinn núna, hjá hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni í Flokki fólksins. Þessi setning hér, með leyfi forseta: „Þetta er mál sem ég hefði talið að flestir þingmenn sem væru kjörnir hér á hinu háa Alþingi gætu stutt en væru ekki að fara fram á nákvæmar greiningar …“ Ég væri eiginlega til í að setja þessa setningu á bol. Að það sé bara fáránlegt að hv. þingmenn sem eru að ræða lagafrumvarp sem getur haft milljarða áhrif á sveitarfélögin, það sé bara út í hróa hött að það sé einhver einasta greining á málinu — ég er eiginlega enn þá í losti yfir að þetta hafi verið sagt hér í þessari pontu. En því miður er þetta eitthvað sem er kannski ekkert sjaldgæft komandi þaðan. Ég biðst velvirðingar, herra forseti, hv. þingmaður var hér rétt áðan, ég vona að ég sé ekki að brjóta reglurnar, ég veit um reglurnar, hann þarf að vera í salnum, en hann var í þessum umræðum rétt áðan. Í Flokki fólksins, en hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra sem er með þetta mál kemur úr Flokki fólksins, hefur oft vantað og verið skortur á að það sé eitthvað sérstaklega ýtt á eftir greiningum. Ef málin eru bara nógu falleg þá eiga þau bara að húrrast í gegn, hvort sem það sé einhver mikill kostnaður eða ekki, það er bara svolítið að negla þessum málum í gegn og lofa einhverju góðu og svo bara sjá hvað verður. Eins og hefur líka sést í þessum umræðum því ekki eru þingmenn úr flokki félags- og húsnæðismálaráðherra að taka til máls hér nema bara að koma í andsvör, sérstaklega hv. þm. Sigurjón Þórðarson sem er svona eins og í fjórðu línu í íshokkí, mætir og tekur slaginn sem er bara góðra gjalda vert, hann kom upp hér áðan. En það er alltaf það sama. Í staðinn fyrir að ræða málið efnislega þá er farið í einhverja flokkadrætti og dilkadrætti og reynt að slá sig til riddara til að koma þessu fína máli af stað án þess að hafa þó nokkurn áhuga á að vera með einhverjar greiningar. Ég hef líka sjaldan séð aðra eins valdeflingu á þingmanni eins og á hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni hérna áðan því í andsvörum við hann var hann orðinn forsætisráðherra, afturvirkur formaður Sjálfstæðisflokksins og ríkisendurskoðandi. Það stendur ekkert á þingmönnum að gera einhverjar greiningar á því hversu mikið frumvörp kosta. Til þess er nefndarvinnan. Frumvarpið er lagt fram, það er hafin nefndarvinna en samt á að keyra eitthvert mál í gegn sem getur kostað milljarða án þess að vera með nokkrar alvörugreiningar á því, það er ekki einu sinni beðið um það og það er víst bara algjörlega út í hött. Þetta er stórundarlegur málflutningur, verð ég að segja.

Ég get ekki betur séð en að allir úr minni hluta velferðarnefndar, bæði framsögumaður 1. minni hluta, hv. þm. Ingibjörg Isaksen, og framsögumaður 2. minni hluta, hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson, og svo hv. þm. Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, hafi verið hér með ansi áhugaverðar og bara mjög alvarlegar athugasemdir við þetta mál því þetta er ekki svona einfalt. Þetta eru ekki bara einhverjir flokkadrættir. Það er alltaf verið að stilla þessu upp; gott og slæmt, svart og hvítt. Eins og var gert hér á vordögum með strandveiðarnar, ef þú kunnir einhverja almenna stærðfræði og vissir að sami fiskur gæti ekki veiðst tvisvar þá varstu á móti smábátasjómönnum. Af því að það var nú talað um smásálarlegan málflutning áðan, þá getum við flokkað þetta líka þar.

Auðvitað þarf greiningar þegar við erum að fara í nokkurra milljarða og jafnvel marga milljarða króna mögulegan kostnað og maður segir enn þá mögulegan af því að það liggur ekkert fyrir. Það er enginn hér í salnum — ég vona að ég sé ekki að leggja hv. þm. Sigríði Á. Andersen orð í munn þegar ég segi að það sé enginn á móti þessu máli beint, við erum öll saman í þessu, en við erum að reyna að taka umræðuna um að þetta sé almennilega gert. Það eina sem ég alla vega heyri að sé verið að biðja um í framsögu 2. minni hluta er að vera með ný ákvæði í þessum samningi þannig að ríkið taki einhverja ábyrgð, nú eða bara að skila þessu aftur til nefndarinnar og ræða málin.

Ein spurning sem kom hér áðan var: Hversu lengi má ég bíða? Má þetta mál bíða? Auðvitað má þetta ekki bíða neitt allt of lengi, þetta er búið að bíða mjög lengi, en það breytir því ekki að við gætum verið að tala um þetta á miklu betri nótum ef greiningarvinnan hefði verið unnin. Þá væri enginn að biðja um að skila málinu aftur til nefndar eða að hér væru jafnvel einhvers konar bráðabirgðaákvæði eins og kom fram hjá 2. minni hluta. Mér fannst þetta mjög skrýtinn málflutningur og andsvörin við hv. þm. Sigurð Örn Hilmarsson furðuleg.

En til þess að enda þetta á jákvæðum nótum, ég vildi bara rétt aðeins koma þessu frá mér, þá vil ég aftur segja og segja það skýrt að það sé engin spurning um að ég styð markmið þessa frumvarps, lögfestingu samningsins, en það er erfitt að styðja hann á þennan hátt án greiningar, án kostnaðarmats og án þess að það sé í raun og veru sagt algerlega skýrt og skorinort hver beri ábyrgð á endanlegri framkvæmd. Eins og kom fram áðan er einhvern veginn búið að klippa á samskiptin eða samráðið á milli okkar hér á hinu háa Alþingi, framkvæmdarvaldsins og síðan sveitarfélaganna.

Ef við ætlum að taka þetta skref, sem ég vona að við gerum á endanum, þá þurfum við að gera það með vönduðum vinnubrögðum. Við verðum að tryggja að sveitarfélögin hafi burði til að sinna sinni þjónustu. Við þurfum að tryggja að stjórnsýslan hafi skýra ábyrgðarkeðju þegar kemur að þessu og við eigum að tryggja það að lögfestingin verði ekki bara táknræn yfirlýsing heldur raunveruleg réttarbót fyrir fatlað fólk í þessu landi því að á endanum er það nákvæmlega það sem þetta mál snýst um.