samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir ágætisræðu og það að hann ætli jafnvel að setja orð mín á bol og mögulega ganga í honum. Ég þakka honum fyrir það. Ég vil líka þakka honum fyrir stuðninginn við þetta mál. Það kemur mér hins vegar á óvart að þingmenn Sjálfstæðisflokksins koma hér hver á fætur öðrum upp í þennan ræðustól og tala um að það sé ekki hægt að samþykkja mál sem felur í sér að tryggja mannréttindi, að fötluðum sé ekki mismunað nema það fari fram nákvæm greining. Þetta er bara einfalt mál. Ef hann les frumvarpið, greinargerð á bls. 32, þá kemur einfaldlega fram áhrifamat frumvarpsins og ég vona að hann kynni sér það betur. Þar er einmitt fjallað um að það sé snúið, þ.e. sama hversu marga sérfræðinga maður fær sem vilja leggja mat á mögulega dómaframkvæmd þá er það snúið. Það kemur fram að það sé ekki hægt að gera það mjög nákvæmlega. Fatlaðir eru hins vegar búnir að bíða núna staðfestingar frá árinu 2007 og nú erum við komin á árið 2025 og við teljum að það sé tímabært að klára þetta mál. Mannréttindi mega mögulega kosta eitthvað. En það væri ágætt að fá það fram hjá hv. þingmanni hvað hann telur að efri mörk á þessum kostnaði megi vera og hvað hann telur ásættanlegt til að mannréttindi fatlaðra á Íslandi fái notið sín. Ég vil bara minna á að ef það er farið yfir hvaða þjóðir hafa stutt þetta mál og fullgilt samninginn þá eru það fátækari ríki en Ísland. Það er Kúba. Það er Mið-Afríkulýðveldið. Það er Danmörk sem er nú vel sett ríki. (Forseti hringir.) En hér allt í einu kemur hver þingmaður Sjálfstæðisflokksins á fætur öðrum og treystir sér ekki til að klára mál sem Kúbumenn klára.