157. löggjafarþing — 28. fundur,  5. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[18:08]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég fékk ekki svar við því hvað hv. þingmaður telur vera ásættanlegan kostnað. Ég er að hugsa um að valda honum örlitlum vonbrigðum eða kannski gleði, ég veit það ekki, með því að flytja ekki sömu ræðuna aftur. Hann fór nú að velta fyrir sér strandveiðum sem ég tel mjög gott og það er rétt hjá honum að maður veiðir ekki sama fiskinn tvisvar. En ég vona að hv. þingmaður átti sig á því að um leið og maður tekur fisk þá gefur maður þeim sem eftir eru meira rými, meira æti, þannig að líklegast mun hann vaxa og þrífast betur, þannig að það er ekki alveg þannig að einn fiskur sé frá öðrum tekinn eins og Sjálfstæðisflokkurinn virðist trúa á. En það er ekki, eins og maður segir, viðtekin vistfræði, ef við förum úr þessari umræðu um þennan samning yfir í strandveiðarnar, sem hv. þingmanni tókst að gera og ég er alveg til í að taka þá umræðu lengra.

Ég vona svo sannarlega að Sjálfstæðisflokkurinn nýti núna tímann milli 2. og 3. umræðu og fari yfir þetta mannréttindamál og sýni ekki þennan smásálarskap sem kemur hérna fram í umræðunni, þ.e. ef mannréttindi snúa að fötluðum þá þarf bara hverja greiningardeildina á fætur annarri til að fara yfir málið. Auðvitað eigum við að setja þessi mannréttindi í forgang og mér finnst bara svo skrýtið að hlusta hérna á flokk sem einhvern tímann var flokkur allra stétta, sem er bara orðinn, hvað skal segja, afar þröngur. Ég sakna hér þingmanna eins og hv. þm. Ásmundar Friðrikssonar sem komu hér fram í umræðunni og fluttu mál sem sneru að þeim sem minna máttu sín í samfélaginu. Ég vonast svo sannarlega (Forseti hringir.) til þess að Sjálfstæðisflokkurinn snúi við blaðinu og styðji þetta mál Flokks fólksins.