157. löggjafarþing — 28. fundur,  5. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[18:14]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurþóru Steinunni Bergsdóttur kærlega fyrir andsvarið. Ég man bara ekki til þess að ég hafi talað um ný réttindi. Ef svo hefur verið þá hef ég mismælt mig. Það var alls ekki planið, bara alls ekki, enda var það alls ekki og átti ekki að vera inntak ræðu minnar. Þannig að ég fagna því að það sé þá hér með leiðrétt því að ég var ekki að tala um ný réttindi, ég er aðallega bara hugsi yfir þessum skorti á greiningu og kostnaðarmati og þrjósku meiri hlutans við að taka þetta til betri greiningar.

Ég veit að ég á nægan tíma eftir en þar sem þetta andsvar varð til vegna mismælis þá hef ég ekkert allt of miklu við það að bæta nema hún vilji kannski spyrja mig að einhverju öðru.