samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Virðulegi forseti. Takk fyrir svarið. Það er gott, ég heyrði þig nefnilega segja þetta og þetta sat í mér. Hugsanlega hefur hv. þingmaður verið að ræða um eitthvað bara svona almennt, en það er alla vega gott að það sé leiðrétt.
Það sem mér finnst áhugavert í þessu líka er þetta með kostnaðarmatið. Að sjálfsögðu eru sveitarfélögin með ýmiss konar kostnaðarmat og það hefur verið lagt fram ýmiss konar mat á hvað það kostar að uppfylla alla þjónustuþörf við fatlað fólk, en þar er sérstaklega átt við húsnæðismálin. Húsnæðismálin eru langstærsti þátturinn. Við erum með lög sem segja að við eigum að tryggja fötluðu fólki húsnæði við hæfi. Við erum með fullgildingu á þessum samningi sem segir að fatlað fólk eigi að búa við reisn og eigi að hafa aðgengi að húsnæði. Það er ekkert sem segir — og ég spurði gesti hjá velferðarnefnd þessarar spurningar: Hvað þýðir það? Þýðir það bara að daginn sem ég verð 18 ára eigi ég bara strax að fá húsnæði sem er einhvern veginn reddað af sveitarfélagi og ef ég fæ það ekki þá geti ég farið í mál? Nei, það mun ekki virka þannig, var mat gesta nefndarinnar, af því að þannig virkar ekki lífið og það er ekkert endilega samkvæmt meðalhófi eða almennt talið að þannig sé það. Það sem þetta gerir hins vegar er að þetta setur kannski meiri þrýsting á sveitarfélögin og meiri þrýsting á okkur sem stjórnvöld að við uppfyllum þessa hluti. Það er áætlun, húsnæði við hæfi, aðgerð C.3, í framkvæmdaáætluninni. Við setjum það inn í okkar nefndarálit að ýtt sé á að því sé flýtt. Þannig að ég lít svo á að við séum alveg að fara inn í þetta með bæði augun galopin og algerlega tilbúin að taka á því sem verður.
En mig langar að spyrja hv. þingmann: Ertu ósammála því að með því að taka þetta skref núna séum við bara að flýta fyrir þessari þróun sem er samkvæmt lögum og óhjákvæmileg?